Blóðtaka úr hryssum telst tilraun á dýrum Kjartan Kjartansson skrifar 16. september 2026 13:15 Ísteka fékk leyfi fyrir blóðmerahaldi ekki endurnýjað eftir að slík starfsemi var færð undir regluverk um vernd dýra sem notuð eru í tilraunaskyni fyrir þremur árum. Það var gert eftir athugasemdir EFTA-dómstólsins. Vísir/Vilhelm EFTA-dómstóllinn hefur sent Héraðsdómi Suðurlands ráð um að túlka skuli blóðtöku úr fylfullum hryssum sem tilraun á dýrum. Blóðtakan falli því undir Evróputilskipun en á grundvelli hennar var fyrirtæki neitað um leyfi til blóðmerahalds.
Fyrirtækið Ísteka stefndi íslenska ríkinu eftir að Matvælastofnun synjaði því um leyfi til blóðmerahalds í vor. Stofnunin taldi starfsemina ekki uppfylla skilyrði reglugerðar um vernd dýra sem væru notuð í vísindaskyni. Héraðsdómur Suðurlands óskaði eftir ráðgefandi áliti frá EFTA-dómstólnum um hvernig rétt væri að túlka ákvæði reglugerðarinnar í samhengi við blóðtöku úr fylfullum hryssum til þess að framleiða svonefndan kynhormónavaka úr blóðvökva hestanna. Vildi dómurinn vita hvort blóðtakan teldist tilraun á dýrum í skilningi reglugerðarinnar og þá hvort að önnur ákvæði hennar undanskildi blóðsöfnunarstarfsemi sem stunduð væri á Íslandi. EFTA-dómstólinn gaf út álit sitt í dag. Hann telur blóðmerahaldið á Íslandi tilraun á dýrum og ekki beri að túlka reglugerðina þannig að hún undanskilji blóðtökuna í máli Ísteka gegn Matvælastofnun og íslenska ríkinu frá reglugerðinni. Valdi hvorki sársauka, þjáningu, hræðslu né varanlegum skaða Ísteka færði meðal annars þau rök fyrir því að blóðtakan félli ekki undir reglugerðina um notkun dýra í tilraunaskyni að starfsemin væri ekki líklega til þess að valda „sársauka, þjáningu, hræðslu eða varanlegum skaða“ sem jafnaðist á eða væri meiri en við nálarstungu í samræmi við góðar starfsvenjur í dýralækningum. Dómstóllinn taldi blóðtökuna ekki falla undir aðferðir sem tengdust viðurkenndu dýrahaldi, ólíkt blóðgjöfum hrossa í dýralækningaskyni. Blóðtakan sjálf veitti velferð hrossa, dýranna sjálfra eða annarra nálægra dýra mesta forgang.
Blóðmerahald Hestar Landbúnaður Stjórnsýsla Dómsmál EFTA Matvælastofnun Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira