Hútar skutu niður herþotu Sáda Samúel Karl Ólason skrifar 16. september 2026 15:38 Skjáskot úr myndbandi sem Hútar birtu í dag. Hútar í Jemen segjast hafa skotið niður herþotu frá Sádi-Arabíu í dag. Þá segjast þeir einnig hafa gert umfangsmiklar árásir á olíuinnviði í Sádi-Arabíu á sama tíma og Sádar hafa látið sprengjum rigna yfir Húta.
Hútar hafa lagt undir sig stóran hluta vesturstrandar Jemen og mikilvægar eyjur á Rauðahafi. Þá hafa þeir gert ítrekaðar árásir á olíuvinnsluinnviði í Sádi-Arabíu. Þessar árásir hafa komið verulega niður á olíuframleiðslu og sölu Sáda. Hútar hafa gert árásir á olíuleiðslur í Sádi-Arabíu og segjast ætla að gera árásir á öll olíuflutningaskip Sáda. Yfirvöld í Sádi-Arabíu hafa tilkynnt kaupendum hráolíu í Evrópu að ekki sé von á því að hún berist þangað á næstunni. Bandarískir erindrekar funduðu um síðustu helgi með fulltrúum Húta í Óman. Þar sögðust þeir ekki ætla að hætta árásum gegn Sádum en hétu því að ráðast ekki á skip annarra eða skotmörk tengd Bandaríkjunum og Ísrael, samkvæmt frétt Reuters. Í dag tilkynntu Hútar svo að þeir hefðu skotið tugum dróna og skotflauga að olíuvinnsluinnviðum ríkisfyrirtækisins Aramco í Yanbu í Sádi-Arabíu. Einnig hefði verið ráðist á herstöð en Hútar segja árásirnar vel heppnaðar. Það hefur ekki verið staðfest. Enn fremur segjast Hútar ætla að halda árásunum áfram og gefa til kynna að það verði gert þar til herkvínni gegn Íran verði aflétt. Klerkastjórnin í Íran hefur lengi staðið við bak Húta. NEW: Yemen's Houthis claim two new strikes on Saudi Arabia:Aramco facilities in Yanbu hit with "dozens of ballistic missiles and drones" causing "large fires and widespread destruction," and Khamis Mushait air base hit with ballistic missiles. They say it was retaliation for… pic.twitter.com/3kiVG5SaAa— Clash Report (@clashreport) September 16, 2026 Þá hafa Hútar einnig birt myndefni sem sagt er sýna það þegar F-15 þota Sáda var skotin niður í dag. Áður hafði mynd af meðlimum Húta standa á braki herþotu verið í dreifingu. Onboard footage of a Houthi SAM system shooting down a Saudi F-15 overnight over Yemen’s Marib province. pic.twitter.com/6mh23B2Ovu— OSINTtechnical (@Osinttechnical) September 16, 2026
Jemen Sádi-Arabía Hernaður Bandaríkin Tengdar fréttir Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Búið er að vara lengi við því að takmarkanir á flutningum olíuafurða um Hormússund muni á endanum leiða til olíukrísu. Yfirmenn bandarískra olíufélaga segja að sú krísa sé nú að raungerast. Olíubirgðir víða um heim séu að verða tómar og vandræði Sáda við að flytja út olíu um aðrar leiðir en sundið hafa aukið á vandann. 15. september 2026 14:57 Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Bæði Rússar og Úkraínumenn gerðu í nótt árásir á innviði hvor annars. Er það eftir að Donald Trump staðhæfði að ráðamenn í báðum ríkjum hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði. Ekkert samkomulag virðist hafa verið í höfn þegar Bandaríkjaforseti lýsti þessu yfir. 15. september 2026 10:13 Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Mohammed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, fundaði í morgun með Brad Cooper, aðmírál og yfirmanni yfirstjórnar herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum (Centcom). Prinsinn hefur á undanförnum dögum farið fram á við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, að Bandaríkjamenn aðstoði Sáda með árásum á Húta í Jemen. Því hefur Trump hafnað. 14. september 2026 11:17 Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Sádi-Arabar hafa lokað einni mikilvægustu olíuleiðslu landsins eftir drónaárásir sem Írakar eru taldir bera ábyrgð á. Atvikið er nýjasta dæmið um útbreiðslu átakanna fyrir botni Persaflóa og setja aukinn þrýsting á alþjóðlegar olíuflutningaleiðir. 12. september 2026 14:01 Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira
Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Búið er að vara lengi við því að takmarkanir á flutningum olíuafurða um Hormússund muni á endanum leiða til olíukrísu. Yfirmenn bandarískra olíufélaga segja að sú krísa sé nú að raungerast. Olíubirgðir víða um heim séu að verða tómar og vandræði Sáda við að flytja út olíu um aðrar leiðir en sundið hafa aukið á vandann. 15. september 2026 14:57
Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Bæði Rússar og Úkraínumenn gerðu í nótt árásir á innviði hvor annars. Er það eftir að Donald Trump staðhæfði að ráðamenn í báðum ríkjum hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði. Ekkert samkomulag virðist hafa verið í höfn þegar Bandaríkjaforseti lýsti þessu yfir. 15. september 2026 10:13
Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Mohammed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, fundaði í morgun með Brad Cooper, aðmírál og yfirmanni yfirstjórnar herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum (Centcom). Prinsinn hefur á undanförnum dögum farið fram á við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, að Bandaríkjamenn aðstoði Sáda með árásum á Húta í Jemen. Því hefur Trump hafnað. 14. september 2026 11:17
Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Sádi-Arabar hafa lokað einni mikilvægustu olíuleiðslu landsins eftir drónaárásir sem Írakar eru taldir bera ábyrgð á. Atvikið er nýjasta dæmið um útbreiðslu átakanna fyrir botni Persaflóa og setja aukinn þrýsting á alþjóðlegar olíuflutningaleiðir. 12. september 2026 14:01