Ráða nýjan forstjóra þvert á ósk framkvæmdastjóra Eiður Þór Árnason skrifar 16. september 2026 16:07 Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir er nýr forstjóri SÁÁ. Hún segir mikilvægt að koma á stöðugleika innan meðferðarsviðsins. Aðsend/samsett Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin nýr forstjóri SÁÁ. Ráðningin kemur í kjölfar þess að starfslokasamningur var gerður við Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, fráfarandi forstjóra. Óánægja er með þá ákvörðun meðal starfsfólks á meðferðarsviði SÁÁ og sögðu framkvæmdastjóri lækninga og fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík upp störfum í kjölfarið. Báðar hafa farið fram á að Ragnheiður verði fengin aftur í forstjórastöðuna.
Greint er frá ráðningunni í tilkynningu frá SÁÁ. Baldvina Ýr er hjúkrunarfræðingur með meistaragráðu í hjúkrunarfræði og diplómanám í opinberri stjórnsýslu. Hún kemur til SÁÁ frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands þar sem hún er framkvæmdastjóri heilsugæslu- og forvarnasviðs. „Baldvina Ýr hefur 16 ára reynslu af stjórnun í heilbrigðisþjónustu. Í núverandi starfi ber hún rekstrarlega ábyrgð á sviði sem nær yfir tíu starfsstöðvar og rúmlega 500 starfsmenn. Sviðið þjónar rúmlega 35.000 íbúum á Suðurlandi,“ segir í tilkynningu um ráðninguna. Markmiðið að skapa stöðugleika „Við erum virkilega ánægð með að fá Baldvinu Ýr til starfa hjá SÁÁ á þessum tímamótum. Hún býr yfir reynslu af stjórnun, sterkum faglegum bakgrunni og þekkingu á flóknum rekstri í heilbrigðisþjónustu. Ráðning hennar er mikilvægt skref í því að skapa stöðugleika, byggja upp traust og styrkja samstarfið innan samtakanna,“ er haft eftir Önnu Hildi Guðmundsdóttur, formanni SÁÁ. Baldvina Ýr er sögð hafa starfað í tíu ár sem deildarstjóri hjúkrunar á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði. Þar áður hafi hún starfað hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, fyrst sem hjúkrunarfræðingur og síðar sem deildarstjóri á hand- og lyflækningadeild. Þá hafi hún jafnframt setið í stjórnum Landssambands heilbrigðisstofnana og Félags stjórnenda í öldrunarþjónustu. „Ég tek við starfi forstjóra SÁÁ af virðingu fyrir því mikilvæga starfi sem unnið er innan samtakanna. Fyrstu verkefni mín verða að hlusta, kynnast starfseminni og eiga samtal við starfsfólk og aðra lykilaðila. Markmiðið er að skapa stöðugleika, styrkja samstarfið og byggja áfram á þeirri miklu þekkingu og reynslu sem býr innan SÁÁ,“ er haft eftir Baldvinu Ýr í tilkynningunni. Hafnar ásökunum um óeðlileg afskipti Þóra Björk Ingólfsdóttir, fráfarandi fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík, og Valgerður Rúnarsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri lækninga, hafa sakað stjórn SÁÁ um óeðlileg afskipti af faglegu meðferðarstarfi og fullyrt að hún hafi gert Ragnheiði ómögulegt að sinna sínum forstjórastörfum áfram með fullnægjandi hætti. Þær segja að Ragnheiður sé reynslumikil, hafi spilað lykilhlutverk í innleiðingu mikilvægra samninga SÁÁ við Sjúkratryggingar sem stendur enn yfir og almennt verið vel liðin meðal starfsfólks. Valgerður hefur gefið til kynna að hún sé tilbúin að snúa aftur til starfa hjá SÁÁ ef aðstæður breytast en hún hefur starfað þar í áratugi. Formaður SÁÁ hefur hafnað ásökunum um óeðlileg afskipti stjórnar. Þá hefur aðalstjórn SÁÁ lýst yfir stuðningi við framkvæmdastjórn. Á sama tíma hefur Landlæknir lýst yfir áhyggjum af stöðu mála hjá SÁÁ. Á sjöunda tug starfsmanna á meðferðarsviði SÁÁ hefur lýst yfir vantrausti á formann samtakanna og framkvæmdastjórn þeirra. Valgerður, fráfarandi framkvæmdastjóri lækninga, sakar stjórn SÁÁ um að hafa viljað losna við síðasta forstjóra í nokkurn tíma. Þetta sagði hún í Kastljósi RÚV í gær. Valgerður sagði stjórnina hafa haft ákveðnar hugmyndir um starfsemi SÁÁ og viljað að forstjórinn fylgdi þeim eftir. Ragnheiður hafi verið þeim ósammála, sett fagleg mörk og þurft að forgangsraða verkefnum út frá heilbrigðisþjónustunni. „Það var bara það mikil pressa á forstjórann að gera hluti eftir forskrift hjá þeim, og ég hef séð fyrirmæli í bréfi frá þeim þar sem það er algjörlega óviðeigandi hvað þau eru í raun og veru að skipa henni fyrir að gera,“ sagði Valgerður í Kastljósi. Fréttin hefur verið uppfærð.
SÁÁ Vistaskipti Tengdar fréttir Í forgangi sé að ræða við starfsfólk SÁÁ og tryggja vinnufrið Aðalstjórn SÁÁ segir í forgangi að funda með starfsfólki og tryggja „vinnufrið, öryggi og traust“ innan samtakanna. Aðalstjórn lýsir í ályktun yfir stuðningi við framkvæmdastjórn SÁÁ í þeirri vinnu framkvæmdastjórnar sem miðar að því að tryggja að heilbrigðisþjónusta samtakanna haldi áfram. Stjórn ætlar ekki að ræða við fjölmiðla um málið samkvæmt tilkynningu. 15. september 2026 10:01 Enn þykknar upp hjá SÁÁ Stór hluti starfsfólks á meðferðarsviði SÁÁ hefur lýst yfir vantrausti á formann samtakanna og framkvæmdastjórn þeirra. Alvarleg staða sé komin upp og kallað eftir því að tryggt verði með skýrum hætti að stjórn félagsins virði faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfs SÁÁ. 11. september 2026 16:21 Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Fráfarandi fagstjóri á Vík, meðferðarstöð SÁÁ, fordæmir vinnubrögð stjórnar SÁÁ og segir fullreynt að heilbrigðisþjónusta sem þessi sé á forræði félagasamtaka. Hún kallar eftir því að stjórnvöld grípi inn í og hefur miklar áhyggjur af framtíð meðferðarstarfsins. Þá segir hún að formaður SÁÁ hafi logið því opinberlega þegar hún sagðist ekki hafa frétt af uppsögn annars stjórnanda. 4. september 2026 21:54 „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Landlæknir lítur átök innan SÁÁ mjög alvarlegum augum en starfsemi samtakanna er nú til skoðunar hjá embættinu. Mikilvægast sé að tryggja öryggi og gæði þjónustu að mati landlæknis sem telur uppsagnir áhyggjuefni. 10. september 2026 12:03 SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ ætlar að hætta störfum en bæði forstjóri samtakanna og fagstjóri hættu í síðasta mánuði. Lækningastjórinn tilkynnti starfsfólki um þetta í morgun. 1. september 2026 12:34 Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Fleiri fréttir Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Sjá meira
Í forgangi sé að ræða við starfsfólk SÁÁ og tryggja vinnufrið Aðalstjórn SÁÁ segir í forgangi að funda með starfsfólki og tryggja „vinnufrið, öryggi og traust“ innan samtakanna. Aðalstjórn lýsir í ályktun yfir stuðningi við framkvæmdastjórn SÁÁ í þeirri vinnu framkvæmdastjórnar sem miðar að því að tryggja að heilbrigðisþjónusta samtakanna haldi áfram. Stjórn ætlar ekki að ræða við fjölmiðla um málið samkvæmt tilkynningu. 15. september 2026 10:01
Enn þykknar upp hjá SÁÁ Stór hluti starfsfólks á meðferðarsviði SÁÁ hefur lýst yfir vantrausti á formann samtakanna og framkvæmdastjórn þeirra. Alvarleg staða sé komin upp og kallað eftir því að tryggt verði með skýrum hætti að stjórn félagsins virði faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfs SÁÁ. 11. september 2026 16:21
Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Fráfarandi fagstjóri á Vík, meðferðarstöð SÁÁ, fordæmir vinnubrögð stjórnar SÁÁ og segir fullreynt að heilbrigðisþjónusta sem þessi sé á forræði félagasamtaka. Hún kallar eftir því að stjórnvöld grípi inn í og hefur miklar áhyggjur af framtíð meðferðarstarfsins. Þá segir hún að formaður SÁÁ hafi logið því opinberlega þegar hún sagðist ekki hafa frétt af uppsögn annars stjórnanda. 4. september 2026 21:54
„Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Landlæknir lítur átök innan SÁÁ mjög alvarlegum augum en starfsemi samtakanna er nú til skoðunar hjá embættinu. Mikilvægast sé að tryggja öryggi og gæði þjónustu að mati landlæknis sem telur uppsagnir áhyggjuefni. 10. september 2026 12:03
SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ ætlar að hætta störfum en bæði forstjóri samtakanna og fagstjóri hættu í síðasta mánuði. Lækningastjórinn tilkynnti starfsfólki um þetta í morgun. 1. september 2026 12:34