Tvö mál í dag þar sem ógnað var með hnífi Eiður Þór Árnason skrifar 16. september 2026 18:02 Ljósmyndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Vísir/Ívar Fannar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í dag vegna þjófnaðar í matvöruverslun þar sem tilkynnt var að einstaklingur hefði ógnað starfsfólki með hníf og komist undan. Sá var handtekinn stuttu síðar skammt frá vettvangi og er málið sagt í rannsókn.
Umrædd lögreglustöð sinnir Kópavogi og Breiðholti í Reykjavík. Einnig var tilkynnt um einstakling í annarlegu ástandi sem hafði komið á ölhús og verið ógnandi með hníf. Viðkomandi var handtekinn og vistaður í fangaklefa þar til hann verður skýrsluhæfur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu en málið kom á borð lögreglustöðvar sem sinnir Seltjarnarnesi og Miðborg, Vesturbæ, Hlíðum, Laugardal og Háleiti í Reykjavík. Einnig var óskað eftir aðstoð vegna þjófnaðar úr annarri matvöruverslun og var vettvangsskýrsla rituð á vettvangi. Ók á einstakling á rafhlaupahjóli Laganna verðir höfðu sömuleiðis afskipti af einstaklingi sem grunaður er um sölu og dreifingu fíkniefna og læknalyfja, vopnalagabrot, peningaþvætti og fleira, að sögn lögreglu. Í ótengdu máli hafi verið óskað eftir aðstoð vegna umferðarslyss þar sem ökumaður bifreiðar ók á einstakling á rafhlaupahjóli. Einn var fluttur á sjúkrahús með sjúkrabíl með minni háttar áverka. Þá aðhafðist lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tvívegis í dag vegna vinnuslysa. Í báðum tilvikum voru tjónþolar fluttir á sjúkrahús með sjúkrabílum til frekari skoðunar með minniháttar áverka, að því er fram kemur í tilkynningu. Öll málin og fleiri voru skráð frá klukkan 5 í morgun til 17 í dag. Þrír eru sagðir vistaðir í fangageymslu lögreglu.
Lögreglumál Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira