Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Lovísa Arnardóttir skrifar 17. september 2026 09:06 Félag múslima á Íslandi fékk úthlutað lóðinni við Suðurlandsbraut 76 árið 2013. Svona litu teikningar út af því hvernig hún átti að líta út. Mynd/Félags múslima á Íslandi Á fundi borgarráðs í dag verða teknar fyrir tvær afturkallanir á lóðum til trúfélaga, annars vegar til rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar og hins vegar til Félags múslima á Íslandi.
Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni var úthlutuð lóð við Mýrargötu árið 2008. Eftir að teikningar lágu fyrir mótmæltu íbúar hæð hennar og stærð og varð svo úr að turnum hennar var fækkað og hún lækkuð í hæð í kringum árið 2020. Múslimar fengu úthlutaða lóð á Suðurlandsbraut 76 árið 2013. Fjallað var um það á Vísi í febrúar 2024 að útlit væri fyrir að ekkert yrði af áætlunum Félags múslima á Íslandi um uppbygginguna en frestur til að byggja á lóðinni rann út sumarið sama ár. Þar kom einnig fram að samkvæmt reglum borgarinnar eigi framkvæmdaaðilar almennt að hefja framkvæmdir innan þriggja ára og að þær eigi ekki að standa lengur en í þrjú ár. Bænahúsið átti að vera á tveimur hæðum og rúmir 677 fermetrar að stærð. Staðsetningu lóðarinnar má sjá að neðan. Við hlið hennar er herkastali Hjálpræðishersins og svo íbúabyggð í Vogahverfi í næsta nágrenni. Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, sagði í viðtali við mbl.is í gær að trúfélögunum hefðu verið send bréf í sumar þar sem þeim hafi gefist tækifæri á að mótmæla afturkölluninni en engin andmæli borist innan þeirra tveggja vikna sem þeim voru gefnar. Einar sagði enn fremur við mbl.is að til stæði að selja lóðirnar á opnum markaði. Fundur borgarráðs hefst klukkan níu í dag og stendur yfirleitt til um hádegis.
Trúmál Reykjavík Skipulagsmál Jarða- og lóðamál Borgarstjórn Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira