Stórsigur hjá Magdeburg og svekkjandi jafntefli í Danmörku Andri Broddason skrifar 17. september 2026 20:45 Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fjögur mörk fyrir Magdeburg í dag. Getty/Ruben De La Rosa Íslendingaliðið Magdeburg vann stórsigur á svissneska liðinu Kriens-Luzern með tíu marka sigri 39-29. Á sama tíma átti Kristján Kristjánsson erfitt með að nýta færin sín þegar SAH og Dinamo Bucuresti gerðu jafntefli 25-25.
Lið Magdeburgar var í engum vandræðum með svissneska liðið þar sem liðið missti aldrei niður forystu leiksins. Eftir nokkra góða spretti var Magdeburg komið í níu marka forskot í hálfleik og var þá leikurinn nánast búinn. Í seinni hálfleiknum passaði Magdeburg að heimamennirnir myndu ekki nálgast þá og héldu sama mun milli liðanna allan leikinn. Sókn Magdeburg var frábær þar sem ekki á hverjum degi nær lið að skora 39 mörk í einum leik. Mörkunum var vel dreift milli leikmanna þar sem fjórir leikmenn í Magdeburg voru með fimm mörk. Gísli Þorgeir Kristjánsson var ekki langt frá þeim en hann skoraði fjögur mörk. Ómar Ingi Magnússon tók því rólega í dag og skoraði aðeins eitt mark. Æsispennandi jafntefli Kristján Kristjánsson, einnig þekktur sem Donni, spilaði stórt hlutverk þegar lið hans SAH – Aarhus tók á móti Dinamo Bucuresti frá Rúmeníu. Leikurinn var jafn allan fyrri hálfleikinn og var SAH undir með einu marki þegar flautað var til hálfleiks. Mikil spenna var í leiknum og reyndu bæði lið að ná forystunni en hvorugt liðið náði að stinga hitt af. Síðustu mínútur leiksins reyndu bæði lið að koma sigurmarkinu inn en það gekk erfiðlega og klúðruðu bæði liðin sínum færum og endaði leikurinn með 25-25 jafntefli. Emil Buhl Lærke, liðsfélagi Donna, var markahæsti leikmaður leiksins en það gekk erfiðlega fyrir Donna að nýta færin sín. Hann tók þrettán skot en náði aðeins að skora tvö mörk. Hann var því aðeins með fimmtán prósent skotnýtingu.
Handbolti Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Íslendingar erlendis Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira