Sport

„Held meira að segja að boltinn hafi verið komin inn áður en ég snerti hann“

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Freyr Sigurðsson skoraði bæði mörk Fram í dag.
Freyr Sigurðsson skoraði bæði mörk Fram í dag. vísir / diego

Fram heimsótti Keflavík á HS Orku völlinn í dag þegar önnur umferð Bestu deild karla eftir skiptingu hélt áfram göngu sinni. Liðin berjast í efri hlutanum og þurftu að sætta sig við sitthvort stigið í dag eftir 2-2 jafntefli. Freyr Sigurðsson skoraði bæði mörk Fram í dag og hann ræddi við Vísi eftir leik.

„Mér fannst eins og við gátum unnið og síðan í lokin þá vorum við líka heppnir að tapa þessu ekki“ sagði Freyr Sigurðsson leikmaður Fram eftir leik.

„Við fórum illa með færin en auðvitað er erfitt að slútta á grasi og boltinn skoppar hvernig sem er þannig það var mjög svekkjandi að fá bara jafntefli“

Fyrra mark Fram var heldur furðulegt en Keflvíkingar voru þá í stökustu vandræðum með að koma boltanum burt áður en Freyr skoraði að lokum.

„Ég veit ekki hvað gerðist einu sinni. Ég held meira að segja að boltinn hafi verið komin inn áður en ég snerti hann en ég tek þetta mark bara“

Freyr Sigurðsson skoraði bæði mörk Fram í dag en hann var þó svekktur með að fara ekki með öll stigin héðan í dag.

„Já en mig langaði bara að vinna, sama hvað og við viljum stefna á og vera bara í öðru sæti. Klára það og við vildum vinna“

Næst tekur við þriggja vikna landsliðspása fram að næsta leik en Freyr Sigurðsson var valinn í u21 árs landslið Íslands.

„Ég mun bara halda áfram að æfa og vonandi fæ ég einhverjar mínútur í landsliðinu, það væri bara geðveikt“ sagði Freyr Sigurðsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×