Pútín sló öll met Samúel Karl Ólason skrifar 21. september 2026 09:49 Vladimír Pútín ætti að fagna úrslitum kosninga helgarinnar. AP/Alexander Kazakov, Sputnik. Flokkur Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, hefur unnið metfjölda þingsæta í kosningunum sem haldnar voru í Rússlandi um helgina. Sameinað Rússland mun væntanlega stjórna 355 af 450 þingsætum í Dúmunni, neðri deild rússneska þingsins, miðað við talin atkvæði þegar búið var að telja 95 prósent greiddra atkvæða.
Flokkurinn var áður var með 310 sæti en enginn flokkur hefur áður haft 355 þingsæti í Dúmunni, samkvæmt rússnesku fréttaveitunni RIA. Þessi þingmannafjöldi gerir flokki Pútíns áfram kleift að breyta stjórnarskrá Rússlands án aðkomu annarra flokka. Kjörsókn á að hafa verið 59.32 prósent, sem er einnig met, samkvæmt Ellu Pamfilova, formanni yfirkjörstjórnarinnar. Eftirlitsaðilum frá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu var ekki boðið að fylgjast með kosningunum. Talsmenn utanríkisráðuneytis Rússlands hafa sakað stofnunina um tvískinnung vegna gagnrýni á fyrri kosningar í Rússlandi. AP-fréttaveitan hefur eftir Pere Joan Pons, forseta ÖSE, að þetta brjóta gegn aðildarsáttmála stofnunarinnar, sem Rússar hafa skrifað undir. Þetta eru fyrstu kosningarnar í Rússlandi síðan innrásin var gerð í Úkraínu. Framkvæmd þeirra var stýrt nákvæmlega af yfirvöldum í Rússlandi og hafði andstæðingum ríkisstjórnar Pútíns verið meinað að bjóða sig fram. Einnig metsigur í Tététínu Ramzan Kadyrov, leiðtogi Téténíu og náinn bandamaður Vladimírs Pútín, hlaut afgerandi sigur í kosningum helgarinnar. Hann var endurkjörinn leiðtogi ríkisins með nærri því hundrað prósent atkvæða, samkvæmt yfirkjörstjórn Rússlands. Einræðisherrann hefur stjórnað Téténíu frá árinu 2004 þegar faðir hans, Akhmat, var myrtur í sprengjuárás. Ramzan Kadyrov, einræðisherra Téténíu.EPA/MIKHAIL METZEL, SPUTNIK Kadyrov fékk, samkvæmt frétt RIA, 99,85 prósent greiddra atkvæða í kosningum helgarinnar og mun því sitja fimmta kjörtímabilið. Árið 2021 fékk hann 99,73 prósent atkvæða og 94,8 prósent árið 2016. Það ár voru fyrstu kosningarnar haldnar í Téténíu en Kadyrov hefur haldið því fram að það hafi verið hann sjálfur sem hafi átt hugmyndina að því að leiðtogi Téténíu ætti að vera kosinn af íbúum landsins. Í frétt Retuers er tekið fram að alþjóðlegir eftirlitsaðilar hafi um árabil gagnrýnt framkvæmd kosninga í Téténíu harðlega. Kadyrov, sem hefur einnig verið gagnrýndur fyrir mikið harðræði, hefur þó ávallt hafnað slíkri gagnrýni.
Rússland Vladimír Pútín Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fleiri fréttir Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Sjá meira