Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Eiður Þór Árnason skrifar 21. september 2026 18:47 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Vísir/Einar Frestun verkfalls flugvirkja myndi ekki draga úr skaða heldur framlengja óvissutímabil og auka tjón allra aðila enn frekar. Þetta segja stjórnendur Icelandair um þá tillögu flugvirkja að fresta boðuðum verkfallsaðgerðum um sjö sólarhringa. Þær hefjast að óbreyttu á miðnætti aðfaranótt miðvikudags. „
Ef trú er á að samtalið geti leitt til niðurstöðu telur Icelandair eðlilegast að Flugvirkjafélag Íslands dragi verkfallsboðunina til baka, frekar en að henni verði frestað, og að viðræður haldi áfram af fullum krafti. Icelandair lagði þannig skriflega til í morgun við FVFÍ að aðilar myndu hittast í dag með það að markmiði að ná samningi, en af slíkum fundi hefur ekki orðið,“ segir í yfirlýsingu frá stjórnendum flugfélagsins. Félag flugvirkja segir að þreifingar hafi átt sér stað milli þeirra og Icelandair sem hafi leitt til þess að ríkissáttasemjari hafi lagt fram innanhússtillögu. Félagið kveðst vera reiðubúið að vinna áfram með þá tillögu. Stjórnendur Icelandair telja það of seint að fresta aðgerðunum núna. „Tjónið sem þegar er orðið næst ekki til baka og frestun um viku myndi setja sömu atburðarás í gang fyrir það tímabil og valda enn frekara tjóni,“ segir í yfirlýsingu flugfélagsins. Flugvirkjafélag Íslands hefur sagt að tilgangurinn með frestunartillögunni hafi verið að gefa báðum samningsaðilum tíma til að vinna áfram með innanhústillögu ríkissáttasemjara og kanna hvort hún gæti leitt til sáttar. Óleyfilegt að fresta verkfalli einhliða með skömmum fyrirvara Verkfallsboðunin hefur þegar valdið verulegum skaða fyrir starfsemi Icelandair, ferðaþjónustuna, íslenskt atvinnulíf og samfélag, að sögn flugfélagsins. Það hafi gripið til umfangsmikilla aðgerða til að lágmarka tjón og auka fyrirsjáanleika fyrir farþega. Til að mynda hafi þeim verið boðið að færa bókanir sínar yfir á aðrar dagsetningar og hafi tæplega þrjú þúsund farþegar nýtt sér þann möguleika. „Þá eru í ljósi stöðunnar merki um hægari bókanir, afbókanir og að farþegar færi sig yfir til annarra flugfélaga. Það sama á við um íslenska ferðaþjónustu þar sem hægt hefur á bókunum og afbókanir átt sér stað,“ er staðhæft í yfirlýsingu Icelandair. Stjórnendur flugfélagsins segja að samkvæmt lögum megi ekki fresta boðuðu verkfalli einhliða með skemmri en þriggja daga fyrirvara. „Þau lög voru sett með þeim rökum að almennt væri ekki hægt að afstýra tjóni sem boðuð vinnustöðvun getur valdið með skemmri fyrirvara.“ Flugvirkjafélag Íslands hefði þannig átt möguleika á að fresta verkfallinu einhliða á laugardag.
Icelandair Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Kjaramál Flug Ferðaþjónusta Tengdar fréttir Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Flugvirkjar fullyrða að forsvarsmenn flugfélagsins Icelandair hafi hafnað tillögu flugvirkja um að fresta boðuðum verkfallsaðgerðum um sjö sólarhringa. Félag flugvirkja segir að tilgangurinn með tillögunni hafi verið að gefa aðilum tíma til að vinna áfram með innanhústillögu ríkissáttasemjara. 21. september 2026 17:16 Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira
Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Flugvirkjar fullyrða að forsvarsmenn flugfélagsins Icelandair hafi hafnað tillögu flugvirkja um að fresta boðuðum verkfallsaðgerðum um sjö sólarhringa. Félag flugvirkja segir að tilgangurinn með tillögunni hafi verið að gefa aðilum tíma til að vinna áfram með innanhústillögu ríkissáttasemjara. 21. september 2026 17:16