Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Birgir Olgeirsson skrifar 22. september 2026 11:01 Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir engin afmörkuð atriði til umræðu í samtölum vegna deilu flugvirkja og Icelandair. Engir formlegir samningafundir standi yfir. Vísir/Vilhelm Samtöl eru í gangi í kjaradeilu flugvirkja og Icelandair en engir formlegir samningafundir hafa verið boðaðir. Að óbreyttu hefst ótímabundið verkfall á miðnætti, aðfaranótt miðvikudagsins 23. september.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir við fréttastofu að ekkert afmarkað eða skýrt sé til umræðu í samtölunum. Um þreifingar sé að ræða. Icelandair hafnaði í gær boði Flugvirkjafélags Íslands um að fresta verkfallinu um sjö sólarhringa. Flugvirkjafélagið sagði frestinn eiga að gefa aðilum tíma til að vinna með innanhústillögu ríkissáttasemjara, tillögu að samkomulagi sem hann hafi lagt fram um helgina. Félagið lýsti vonbrigðum með höfnunina. Telja frestun auka tjónið Icelandair segir of seint að afstýra því tjóni sem verkfallsboðunin hafi þegar valdið. Tæplega þrjú þúsund farþegar hafi fært bókanir sínar og merki séu um færri nýjar bókanir, afbókanir og að farþegar velji önnur flugfélög. Vikufrestun myndi að mati Icelandair lengja óvissuna og setja sömu atburðarás af stað fyrir nýtt tímabil. Þannig myndi frestunin valda frekara tjóni hjá flugfélaginu og ferðaþjónustunni, þótt verkfallið hæfist ekki á upphaflega boðuðum tíma. Félagið vill að flugvirkjar dragi verkfallsboðunina til baka og haldi viðræðum áfram af fullum krafti. Icelandair kvaðst í gærmorgun hafa óskað skriflega eftir fundi með það að markmiði að ná samningi en sagði í yfirlýsingu síðdegis að af honum hefði ekki orðið. Samþykki Icelandair þarf til frestunar með svo skömmum fyrirvara. Samkvæmt lögum þarf að tilkynna einhliða frestun með minnst þriggja sólarhringa fyrirvara, en með samþykki beggja aðila má fresta verkfalli hvenær sem er. Óttast skaða á orðspori Íslands Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, sagði í Bítinu á Bylgjunni í morgun að ótímabundið verkfall gæti skaðað orðspor Icelandair og Íslands til lengri tíma. Hann kvaðst eiga von á inngripi stjórnvalda ef til verkfalls kæmi. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra sagði á Alþingi í gær að ríkisstjórnin fylgdist náið með deilunni og myndi grípa til nauðsynlegra aðgerða hverju sinni. Hann kvaðst þó enn binda vonir við að samningar næðust.
Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Ferðaþjónusta Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Kjaramál Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira