Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Árni Sæberg skrifar 23. september 2026 09:37 Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra. Anton Brink Ríkisstjórn Íslands afgreiddi frumvarp Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra um lög um bann við verkfallsaðgerðum flugvirkja í morgun, áður en flugvirkjar aflýstu verkfalli sínu í kjölfarið.
Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, sagði það ekki óvænt að setja eigi lög á verkfall flugvirkja, í samtali við Vísi. Hann sagði engan hafa haft samband við félagið vegna þess og samninganefnd hefði ekki verið í sambandi við ríkissáttasemjara frá því í gær. Verkfallið hófst á miðnætti. „Þetta er það sem lá fyrir og ég bjóst við, það er þannig, það lá í loftinu,“ segir Óskar í samtali við fréttastofu. Athugasemd: Fréttin var uppfærð eftir að flugvirkjar aflýstu verkfalli sínu upp úr klukkan 11. Það hafði staðið frá miðnætti. Hann vísaði að því loknu í yfirlýsingu frá félaginu sem send var út í gær. Þar kemur fram að félagið hafi átt í virku samtali í gær. Þau hafi boðist til að fresta aðgerðum um tvær vikur yrði unnið að markvissum og stífum samningsviðræðum á grundvelli miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Því boði hafi verið hafnað af hálfu Icelandair í gær. „Flugvirkjafélag Íslands lýsir yfir miklum vonbrigðum með niðurstöðu gærdagsins. Það er döpur niðurstaða að þrátt fyrir þann vilja hafi ekki tekist að ná samkomulagi. Flugvirkjafélag Íslands mun áfram leggja áherslu á að leita lausnar við samningaborðið og er tilbúið til viðræðna þegar vilji er til staðar af hálfu beggja samningsaðila. Það þarf tvo til að ná samkomulagi. Flugvirkjafélagið hefur sýnt að það er tilbúið að halda áfram að leita lausnar,“ segir að lokum í yfirlýsingunni. Litið til eldra frumvarps Samkvæmt heimildum Vísis var litið til frumvarps um bann við verkfalli flugvirkja frá árinu 2014 við gerð frumvarps innviðaráðherra. Það frumvarp varð aldrei að lögum þar sem verkfallinu var aflýst áður en til þess kom. Því frumvarpi var útbýtt þann 18. júní árið 2014 en verkfall flugvirkja hafði hafist tveimur dögum áður. Samkvæmt frumvarpinu átti bann við vinnustöðvun að taka gildi á sama tíma og lögin og samningsaðilum var veittur frestur til 1. júlí sama árs til þess að ná saman. Eftir þann dag átti deilan að fara fyrir gerðardóm, sem átti svo að komast að niðurstöðu um kjör flugvirkja fyrir 1. ágúst þess árs.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Kjaramál Icelandair Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira