„Mistök að fela honum forystu“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 24. september 2026 19:41 Guðmundur Ingi Þóroddsson segir skoðun sína miðast við hæfni ekki heilsu. Vísir/Samsett Guðmundur Ingi Þóroddsson segir að það hafi verið mistök að fela nafna sínum, Guðmundi Inga Kristinssyni, forystu í mennta- og barnamálum. Hann telur rétt hafa verið að skipta um ráðherra en segir að það breyti því ekki að gagnrýna megi hvernig staðið var að brotthvarfi hans úr ríkisstjórn.
Guðmundur skrifar þetta í færslu á Facebook í kvöld í tilefni af umræðu um brotthvarf ráðherrans fyrrverandi úr ríkisstjórn. Hann leiddi lista Flokks fólksins í Reykjavík í borgarstjórnarkosningunum í vor. Hann hafði áður sóst eftir sæti á lista Samfylkingarinnar en gekk til liðs við Flokk fólksins í aðdraganda kosninganna „Það er sjálfsagt ekki auðvelt að vera Guðmundur Ingi Kristinsson þessa dagana, eða bara Guðmundur Ingi,“ skrifar hann og segir eina spurningu hafa vantað í umræðuna. „Var hann rétti maðurinn til að gegna því? Ég held að allir viti svarið, nema kannski hann sjálfur.“ Guðmundur tekur fram að afstaða hans miðist við hæfni hans til að gegna embættinu en ekki veikindi hans. Þótt gagnrýna megi hvernig staðið var að brotthvarfi fyrrverandi ráðherrans sé ekki þar með sagt að ákvörðunin sjálf hafi verið röng. Inga og Kristrún þvo hendur sínar Ummælin koma í kjölfar þess að Guðmundur Ingi Kristinsson birti í dag skilaboð sem honum bárust frá Guðbjörgu Ingunni Magnúsdóttur, þáverandi aðstoðarmanni hans, í janúar þegar hann var nýkominn af sjúkrahúsi eftir hjartaaðgerð. Í skilaboðunum var honum tjáð að ákvörðun hefði verið tekin um að hann léti af ráðherraembætti. Honum voru boðnir tveir kostir, að tilkynna sjálfur um afsögn sína eða fara í stríð við forystu flokksins. Guðbjörg er eiginkona Ragnars Þórs Ingólfssonar, sem tók sæti í ríkisstjórninni í kjölfar ráðherraskiptanna. Guðmundur Ingi Kristinsson hefur sakað Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, um að hafa þrýst á sig að láta af embætti á meðan hann var að jafna sig eftir aðgerðina. Inga hefur hafnað þeirri lýsingu á samskiptum þeirra og segir fleiri hliðar á málinu. Málið kom til umræðu á Alþingi í dag þar sem Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, krafði Ingu svara um aðdraganda afsagnarinnar. Bæði Inga Sæland og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segja að ákvörðunina um afsögn hafi Guðmundur Ingi Kristinsson sjálfur tekið.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Flokkur fólksins Alþingi Afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira