Körfubolti

Lebron talaði hreint út

Aron Guðmundsson skrifar
Lebron James er tilbúinn í að leggja á sig mikla vinnu til að vinna enn einn NBA meistaratitilinn. Nú á nýjum slóðum
Lebron James er tilbúinn í að leggja á sig mikla vinnu til að vinna enn einn NBA meistaratitilinn. Nú á nýjum slóðum Vísir/Getty

Lebron James segist ekki hafa yfirgefið fjölskyldu sína í Los Angeles til þess að falla snemma úr leik í úrslitakeppni NBA deildarinnar með nýja liði sínu Philadelphia 76ers. Hann ætlar sér annan meistaratitil á lokastigi ferilsins. 

„Ég lifi bara í núinu, sér í lagi ef ég tek það með í reikninginn á hvaða stað ég er á mínum ferli. Ég væri ekki að gera mér neinn greiða með því að vera pæla í framtíðinni. Ég er í núinu, með fullan skilning á því að ég er á mínu 24 ári í deildinni. Sjáum hvað gerist,“ sagði Lebron á fjölmiðladegi Philadelphia 76ers í dag. 

Átta tímabila veru hans hjá Los Angeles Lakers lauk fyrr á þessu ári, þar vann hann einn NBA meistaratitil og fari svo að hann vinni meistaratitil með 76ers þá verður það fjórða liðið sem hann vinnur meistaratitil með. 

Lebron verður 42 ára í desember á þessu ári og klár í að gera sitt til að sækja í átt að titli með 76ers. 

„Ég yfirgaf ekki fjölskyldu mína (í Los Angeles) til að tapa í 2. umferð,“ sagði Lebron um komandi tímabil en 76ers töpuðu í 2. umferð úrslitakeppni NBA deildarinnar á síðasta tímabili gegn þá verðandi NBA meisturum New York Knicks. 

„Við þurfum að leggja á okkur vinnu. Ég er tilbúinn í að leggja á mig vinnu.“

Lebron James hefur fyrir löngu síðan markað sér sess á hátindum NBA deildarinnar með sínum fjórum meistaratitlum til þessa. Hann er einn allra besti leikmaðurinn í sögu deildarinnar og gæti enn bætt við fleiri meistaratitlum. 

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×