Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ Valur Páll Eiríksson skrifar 29. september 2026 16:45 Pochettino þurfti að halda að sér höndum vegna fjárhagsreglna sem andstæðingar hans í titilbaráttunni fyrir tæpum áratug, Chelsea og Manchester City, brutu. Vísir/Getty Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna og fyrrverandi þjálfari Southampton, Tottenham og Chelsea á Englandi, segir dóm Manchester City í 114 kæruliðum fyrir fjárlagabrot sjokkerandi. Ómögulegt sé að segja til um hvernig eigi að refsa félaginu.
Pochettino var spurður út í dóminn á blaðamannafundi bandaríska landsliðsins í gær. Hann stýrði Tottenham við góðan orðstír og hafnaði í þriðja sæti þegar City varð meistari vorið 2018 og í öðru sæti ári fyrr, vorið 2017, þegar Chelsea varð meistari en það Chelsea-lið hefur einnig verið fundið sekt fyrir fjárlagabrot. „Þegar þú ert fundinn sekur um 114 af 115 ákæruliðum er mjög erfitt að vita hver refsingin ætti að vera til að hún sé sanngjörn. Vegna þess að það eru önnur félög eins og Nottingham Forest eða Everton sem brutu reglur og fengu aðrar refsingar, hvort sem það voru stigadráttur eða sektir,“ sagði Pochettino. „Þetta er mjög erfið staða sem veldur undrun í ljósi umfangs dómsins. Og það er líka sanngjarnt að spyrja hvar eftirlitið var þegar reglurnar voru brotnar með þessum hætti. Það er það sem vekur mesta athygli mína.“ Hafði sjálfur ekkert svigrúm til eyðslu Pochettino rifjaði upp að á meðan hann var hjá Tottenham var félagið að byggja nýjan leikvang og hafði um tíma ekkert fjárhagslegt svigrúm til að kaupa leikmenn. Hann sagði að hann teldi að Spurs væri eina liðið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar sem hefði farið í gegnum 18 mánuði án þess að geta keypt leikmann. „Það var mikill ókostur því við vorum að berjast á meðal bestu liðanna og komumst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar [árið 2019],“ sagði hann. „Hvers vegna var eftirlitið svona strangt með okkur en ekki eins mikið með öðrum? Þess vegna segi ég að þetta sé allt mjög undarlegt og vandamálið er að allt verður óljóst. Ef það er satt að þeir hafi brotið 114 reglur, þá höfum við lifað á tímum blekkinga. Engin refsing mun geta bætt fyrir það sem gert var og eftirlit ensku úrvalsdeildarinnar er stórskemmt.“ „Þetta er mjög sorgleg staða því það sem þegar var afrekað og fagnað var kannski ekki raunverulegt,“ sagði Pochettino. „Við höfum lifað á tímabili þar sem íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar. Ef ákærurnar reynast sannar er mjög erfitt að bæta fyrir það sem gerðist. Ég vona að það þjóni að minnsta kosti þeim tilgangi að tryggja að jafnræði ríki í framtíðinni.“
Tottenham Hotspur Manchester City Fjármál Manchester City til rannsóknar Enski boltinn Bandaríski fótboltinn Mest lesið Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Ísland - Sviss | Allt undir hjá ungu strákunum okkar Fótbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl Fótbolti Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Fótbolti Fleiri fréttir Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjá meira