Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar 29. september 2026 14:30 Umræðan um dánaraðstoð snýst ekki aðeins um dauðann. Hún snýst líka um mannréttindi, sjálfræði, mannlega reisn og mörk þess valds sem samfélagið hefur til að setja einstaklingnum skorður þegar kemur að ákvörðunum um eigið líf og lífslok. Mannréttindasáttmáli Evrópu tryggir rétt til lífs í 2. gr. og friðhelgi einkalífs í 8. gr. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur ekki túlkað sáttmálann þannig að af honum leiði almennur réttur til dánaraðstoðar. Dómstóllinn hefur hins vegar viðurkennt að ákvörðun einstaklings um með hvaða hætti og hvenær lífi hans skuli ljúka geti fallið undir sjálfsákvörðunarrétt sem verndaður er af 8. gr., að því gefnu að viðkomandi sé fær um að taka frjálsa og upplýsta ákvörðun. Spurningin er ekki einfaldlega hvort fyrir hendi sé alþjóðlega viðurkenndur „réttur til að deyja“. Slíkur ótvíræður réttur hefur ekki verið viðurkenndur samkvæmt Mannréttindasáttmála Evrópu. Spurningin er fremur hversu langt sjálfsákvörðunarrétturinn eigi að ná þegar einstaklingur telur áframhaldandi líf ósamrýmanlegt eigin hugmyndum um reisn og lífsgæði. Dánaraðstoð við dauðvona einstakling sem þjáist óbærilega og óskar þess að ráða eigin lífslokum vekur að mörgu leyti önnur álitaefni en þegar einstaklingur er ekki dauðvona en býr við ólæknandi sjúkdóm eða alvarlegt og varanlegt heilsufarsástand sem hann sjálfur upplifir sem óbærilegt. Á slíkur einstaklingur að hafa minni möguleika til að ráða eigin lífslokum vegna þess að hann gæti annars lifað árum eða áratugum lengur? Þetta er ein af grundvallarspurningunum sem Íslendingar þurfa að svara ef við ætlum að setja lög um dánaraðstoð á Íslandi. Er rökrétt að miða við yfirvofandi dauða? Lönd og ríki sem heimila dánaraðstoð hafa dregið mörkin með ólíkum hætti. Samanburður á Oregon, Hollandi og Kanada sýnir þrjár ólíkar leiðir: áherslu á nálægð dauðans, áherslu á óbærilega þjáningu án batahorfa og heimild sem er ekki bundin við fyrirsjáanlegan náttúrulegan dauða, með aukinni vernd þegar dauðinn er ekki fyrirsjáanlegur. Í Oregon í Bandaríkjunum er dánaraðstoð bundin við banvænan sjúkdóm og að viðkomandi eigi að jafnaði ekki meira en sex mánuði ólifaða. Í Hollandi er hins vegar ekki gerð krafa um að einstaklingur sé dauðvona. Þar þarf meðal annars að liggja fyrir sjálfviljug og vel ígrunduð beiðni, óbærileg þjáning án batahorfa og sú niðurstaða læknis og sjúklings að engin sanngjörn önnur lausn sé fyrir hendi. Þjáningin þarf jafnframt að eiga sér læknisfræðilega rót. Löngun til að deyja eða sú tilfinning að lífinu sé „lokið“ nægir því ekki ein og sér. Kanada hefur farið enn aðra leið. Þar er ekki lengur skilyrði að náttúrulegur dauði sé fyrirsjáanlegur, svo framarlega sem önnur lagaskilyrði séu uppfyllt. Þegar dauðinn er ekki fyrirsjáanlegur gilda auknar öryggiskröfur, meðal annars ítarlegra mat og sérstakar kröfur um að kanna mögulegar leiðir til að draga úr þjáningu. Þessi dæmi svara ekki hvaða leið henti Íslandi best. Þau sýna hins vegar að löggjafinn þarf að taka afstöðu til þess hvort nálægð dauðans, eðli þjáningarinnar eða samspil þessara þátta eigi að ráða aðgengi að dánaraðstoð. Tveir einstaklingar, en hvers vegna ólík mörk? Hugsum okkur tvo einstaklinga. Annar er með ólæknandi krabbamein og á að mati lækna þrjá mánuði ólifaða. Hann þjáist mikið, er fær um að taka upplýsta ákvörðun og óskar eftir dánaraðstoð. Hinn hefur orðið fyrir alvarlegum mænuskaða og býr við varanlegt heilsufarsástand sem veldur honum, þrátt fyrir meðferð og stuðning, viðvarandi þjáningu sem hann upplifir sem óbærilega. Eftir langan tíma og ítarlegt mat óskar hann eftir dánaraðstoð. Hann er fær um að taka upplýsta ákvörðun, en er ekki dauðvona og gæti lifað í nokkur ár. Ef fyrri einstaklingurinn getur fengið dánaraðstoð en sá síðari ekki, vaknar óhjákvæmilega spurningin: Á hverju á sá greinarmunur að byggjast? Ef réttlæting dánaraðstoðar byggist meðal annars á sjálfræði, óbærilegri þjáningu og mannlegri reisn þarf að útskýra hvers vegna tíminn sem einstaklingur á eftir ólifaðan eigi að ráða úrslitum. Ef sex mánuðir eru valdir sem mörk, hvers vegna sex en ekki tólf? Og hvers vegna ætti sá sem stendur frammi fyrir langvarandi og óafturkræfu ástandi að vera útilokaður eingöngu vegna þess að lífslíkur hans eru meiri? Má vera að mörkin séu að hluta dregin út frá samúð okkar með þeim sem eru dauðvona, fremur en samkvæmri afstöðu til sjálfræðis einstaklingsins? Hver á síðasta orðið? Þegar kemur að dánaraðstoð þarf að vega saman tvö sjónarmið sem geta togast á: sjálfræði einstaklingsins og skyldu samfélagsins til að vernda fólk sem kann að vera í viðkvæmri stöðu. Við getum ákveðið að dánaraðstoð skuli eingöngu standa þeim til boða sem eru dauðvona og eiga nokkra mánuði ólifaða. Slík afmörkun er skýr og getur auðveldað lagasetningu og framkvæmd. Hún kann einnig að draga úr hættu á mistökum, þrýstingi eða ákvörðunum sem teknar eru við aðstæður sem síðar gætu breyst. En skýr mörk þurfa líka að eiga sér rök. Hvers vegna hefur einstaklingur sem á sex mánuði ólifaða meiri möguleika til að ráða eigin lífslokum en einstaklingur sem stendur frammi fyrir árum eða áratugum í ástandi sem hann upplifir sem óbærilegt og óafturkræft? Og hvað með einstakling sem óskar eftir að deyja, hefur enga lífslöngun og sér engan tilgang með lífinu en er hvorki dauðvona né þjáist óbærilega? Hversu langt á samfélagið að ganga í að ákveða fyrir sjálfráða manneskju að líf hennar sé þess virði að lifa þegar hún sjálf hefur komist að annarri niðurstöðu og hvar eigum við að draga mörkin? Greinarhöfundur er stjórnarmaður í Lífsvirðingu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dánaraðstoð Mest lesið Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun