Kristrún tilbúin í aðgerðir Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 1. október 2026 15:33 Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra. Vísir/Anton Brink Kristrún Frostadóttir segir ríkisstjórnina reiðubúna til að tamarka hækkanir á krónutölugjöldum og gjaldskrám ríkisstofnana við 2,5 prósent ef allir geri sitt og kjarasamningar halda. Þetta tilkynnti hún í ræðu á ársfundi Samtaka atvinnulífsins í dag.
Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 hefur hingað til verið gert ráð fyrir hækkunum á almennum krónutölugjöldum og gjaldskrám ríkisstofnana um 5,2 prósent í takti við verðbólgu. Hækkanirnar hafa verið umdeildar og meðal annars gagnrýndar af forsvarsmönnum stéttafélaga sem hafa sagt þær geta viðhaldið verðbólgu og háum stýrivöxtum. Þá samþykkti Samband íslenskra sveitarfélaga ályktun um að hækkunum almennra gjaldskráa yrði haldið innan 2,5 prósenta á næsta ári í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabankans. Kristrún vék í ræðu sinni meðal annars að þrátt fyrir stór orð og fullyrðingar hefði almenn atvinnuvegafjárfesting aukist á þessu ári. Sagði hún að ef stóra myndin væri skoðuð væri staðreyndin sú að meðalverðbólga frá aldamótum hafi verið um fimm prósent. Sagði hún að með hallalausum fjárlögum vær loksins verið að snúa við blaðinu, tekist hefði að hemja undirliggjandi verðbólgu. „Við vitum öll hvaða afleiðingar hækkandi heimsmarkaðsverð á olíu hefur haft. En ég mun á morgun – eftir uppbyggilegt og gott þríhliða samtal við Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins – fara fyrir ríkisstjórn með aðgerðalista og tillögu að yfirlýsingu þessara aðila, ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem miðar að því að verja kjarasamninga. Með því að ná niður verðbólgu og skapa aðstæður fyrir lækkun vaxta. Þetta er gert með afmörkuðum aðgerðum – án þess að auka kostnað fyrirtækja eða ógna markmiði um hallalaus fjárlög.“ Sagðist Kristrún þakka fyrir þétt samstarf síðustu mánuði við Samtök atvinnulífsins og þakkaði fyrir frumkvæði fyrirtækja sem lagt hefðu sitt af mörkum til að halda aftur af verðhækkunum. „Þá fagna ég ályktun frá landsþingi Sambands íslenskra sveitarfélaga um vilja til að halda hækkunum á gjaldskrám innan við 2,5 prósent á árinu 2027. Og að sjálfsögðu er ríkisstjórnin reiðubúin að gera slíkt hið sama ef allir gera sitt og samningar halda – með því að takmarka hækkanir á almennum krónutölugjöldum og á gjaldskrám ríkisstofnana við 2,5 prósent og með tilmælum til fyrirtækja í eigu ríkisins. Þetta hefur áður komið fram og var reyndar líka á borðinu strax í sumar í þríhliða samtalinu – en þá náðist ekki saman um aðgerðir í þessa veru.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira