Innlent

Á­rekstur við Hamra­borg

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Slysið varð rétt við Hamraborg.
Slysið varð rétt við Hamraborg. Stöð 2/Arnar

Árekstur varð á suðurleið á Hafnarfjarðarvegi við Hamraborg í Kópavogi um hálf fimm.

Þetta staðfestir Friðrik Theódórsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.

Einn sjúkrabíll var sendur á vettvang og tækjabíll en var beiðni um tækjabíl afturkölluð skömmu síðar. Engar upplýsingar lágu fyrir um hvort að einhver væri slasaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×