Erlent

Marco Rubio á leið til Ís­lands

Agnar Már Másson skrifar
Þorgerður Katrín og Marco Rubio þegar þau hittust í tengslum við fund Atlantshafsbandalagsins í Antalya í Tyrklandi í fyrra.
Þorgerður Katrín og Marco Rubio þegar þau hittust í tengslum við fund Atlantshafsbandalagsins í Antalya í Tyrklandi í fyrra. Stjórnarráðið

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kemur til Íslands í næstu viku eftir að hafa þegið boð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um heimsókn.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá Stjórnarráðinu en þar er haft eftir Þorgerði að það sé mikið ánægjuefni að Rubio hafi þegið heimboðið „sem ég ítrekaði við hann í New York á dögunum“ en þau hittust á hliðarlínum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna sem haldið var í síðustu viku.

„Samstarf Íslands og Bandaríkjanna stendur á traustum grunni og heimsókn hans hingað er til marks um það,“ er haft eftir Þorgerði enn frekar, sem segir í tilkynningunni að það hafi verið sérstakt áherslumál sitt í embætti utanríkisráðherra að styrkja tengsl Íslands við nánustu vina- og bandalagsríki beggja vegna Atlantshafsins.

„Við eigum í virku samtali við Bandaríkin um sameiginleg hagsmunamál þar sem samstarf í varnarmálum, öryggi á norðurslóðum og viðskipti milli ríkjanna vega hvað þyngst. Það er tilhlökkunarefni að taka á móti utanríkisráðherra Bandaríkjanna sem mun styrkja okkar góða samband enn frekar,“ er haft eftir henni að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×