Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir og Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifa 2. október 2026 08:02 Innritun í leikskóla Reykjavíkur hefur gengið vonum framar í haust og það eru frábærar fréttir. Rúmlega 2.000 börn hafa fengið boð um leikskólavist frá því stóra innritunin hófst í vor og aðlögun er lokið í flestum leikskólum af því mönnun hefur gengið vel. Þetta er besta staða leikskólakerfisins í Reykjavík í mörg ár og hún varð hvorki til núna í sumar né af sjálfu sér. 1.280 ný leikskólapláss á tveimur kjörtímabilum Frá árinu 2018 hafa bæst við 1.280 leikskólapláss í Reykjavík, 985 í leikskólum borgarinnar og 295 í samstarfi við sjálfstætt starfandi leikskóla. Uppbyggingin hófst á árunum 2018 og 2019 með færanlegum stofum við Maríuborg, Hof, Jöklaborg, Kvistaborg og Seljakot sem skiluðu samtals 78 plássum. Síðan komu 90 pláss í Dalskóla árið 2020 og 12 pláss í viðbyggingu við Seljakot árið eftir. Árið 2022 bættust við 546 pláss á einu ári. Þar munaði mest um Ævintýraborgirnar þrjár á Nauthólsvegi, við Eggertsgötu og í Vogabyggð, með samtals 285 plássum. En uppbyggingin náði miklu víðar. 76 ný pláss bættust við í Brákarborg og 60 í ungbarnaleikskólanum í Bríetartúni. Á öðrum leikskólum fjölgaði plássum samtals um 125. Árið eftir bættust við 135 pláss með ungbarnaleikskólanum við Hallgerðargötu og Ævintýraborg í Vörðuskóla. Á árunum 2025 og 2026 hafa svo Stakkaborg, Hlaðhamrar, Klambrar og Hulduheimar stækkað um alls 124 pláss. Samhliða þessu hefur samstarf við sjálfstætt starfandi leikskóla skilað 295 plássum en þar vegur þyngst fjölgun hjá Félagsstofnun stúdenta um 115 pláss á Mánagarði og Sólgarði. Þannig hefur uppbyggingin haldið áfram, ár eftir ár, með nýjum leikskólum, viðbyggingum og færanlegu húsnæði víðs vegar um borgina. Og uppbyggingin heldur áfram! Núna rís nýr glæsilegur leikskóli við Rafstöðvarveg í Elliðaárdal á methraða með 120 plássum og möguleika á stækkun upp í 200 börn síðar. Undirbúningur er hafinn að 180 barna leikskóla á Fossvogsbletti auk þess sem fyrirhugaðar eru stækkanir og færanlegar stofur við fleiri leikskóla. Hvert einasta af þessum 1280 plássum var ákveðið, fjármagnað og sett í gang áður en núverandi meirihluti tók við og það sama gildir um þau pláss sem eru í byggingu núna. Þetta er árangur tveggja kjörtímabila af markvissri uppbyggingu undir forystu Samfylkingarinnar. Verkefninu er þó ekki lokið, enn vantar fleiri leikskóla og enn þarf að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Þá hefur mönnun leikskólanna batnað verulega. Í september 2024 átti eftir að ráða í 123 stöðugildi, ári síðar voru þau 74 en í byrjun september í ár voru þau 35. Það er ánægjulegur árangur sem byggir meðal annars á þeirri uppbyggingu og vinnu við að bæta kjör og starfsumhverfi sem ráðist var í á síðasta kjörtímabili. Þessi staða varð ekki til á þeim fáu vikum sem nýr meirihluti hefur setið við völd. Hvað hefur nýi meirihlutinn gert? En hvernig gengur nýjum meirihluta í Reykjavík að vinna í leikskólamálum? Á 100 daga lista nýs meirihluta eru þrjú verkefni sem snerta börn á leikskólaaldri og merkt hefur verið við að þeim sé öllum lokið. Þessi verkefni eru: Að móta umgjörð um dagheimili, nýtt daggæslustig fyrir 12–30 mánaða börn. Að semja við einkaaðila um uppbyggingu hagkvæms leikskólahúsnæðis. Að hefja viðræður við vinnustaði um stofnun leikskóla eða daggæslu fyrir börn. Þetta er merkilegt af því ekkert þessara verkefna hefur komið til afgreiðslu eða efnislegrar umræðu í leikskóla- og daggæsluráði. Engin umgjörð um dagheimili hefur verið lögð fram, engir samningar um nýtt leikskólahúsnæði hafa verið kynntir og ekki hefur verið greint frá neinum umsóknum áhugasamra fyrirtækja um stofnun leikskóla eða daggæslu. Túlkun meirihlutans á því hvað felst í því að ljúka verkefni er í besta falli frjálsleg. Í það minnsta er ljóst að nýtt fólk í brúnni hefur ekki bætt við einu einasta leikskólaplássi sem ekki var þegar ákveðið og fjármagnað áður en það tók við. Engar nýjar aðgerðir til að bæta kjör eða starfsaðstæður starfsfólks hafa heldur litið dagsins ljós. Á sama tíma bíða yfir 200 börn eldri en 12 mánaða eftir plássi án þess að vera hjá dagforeldri þannig að verkefninu er hvergi nærri lokið. Við fögnum góðum árangri í innritun og mönnun í haust. Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn og fær nú að fylgja eftir uppbyggingu sem er farin að skila sér af fullum krafti. Betra veganesti er vandfundið. Höfundar eru fulltrúar Samfylkingarinnar í leikskóla- og daggæsluráði Reykjavíkurborgar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir Borgarstjórn Mest lesið Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar