Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar 2. október 2026 10:02 Stjórnir SL lífeyrissjóðs og Almenna Lífsverks hafa lagt til sameiningu sjóðanna og fjármála- og efnahagsráðherra hefur með undirritun viljayfirlýsingar lýst stuðningi við þær lagabreytingar sem sameiningin krefst. Málið snýst hins vegar um miklu meira en sameiningu tveggja lífeyrissjóða; áformin fela í sér grundvallar breytingu á lífeyrissjóði sem gegnir lögbundnu hlutverki við að fylgja eftir skyldutryggingu lífeyrisréttinda og mun færa verulegan hluta skylduiðgjalds úr samtryggingu yfir í séreign. Sú tilfærsla breytir samsetningu og eðli tryggingaverndar sem sjóðfélagar njóta og getur haft umtalsverð áhrif á lífeyrisgreiðslur til framtíðar. Með stuðningi sínum við áformin styður ráðherra því ekki aðeins sameiningu sjóða heldur kerfisbreytingu sem gengur bæði gegn þeirri meginskipan lífeyrismála sem aðilar vinnumarkaðarins hafa byggt upp og gegn kjarasamningi ASÍ og SA um lífeyrismál. Sameiginleg ábyrgð Aðilar vinnumarkaðarins hafa um áratugaskeið borið meginábyrgð á mótun íslenska lífeyriskerfisins. Kerfið byggir á skylduaðild, sjóðssöfnun og samtryggingu og hefur sjálfbærni að leiðarljósi. Með því að semja um iðgjöld og fyrirkomulag réttindamyndunar hefur markmiðið verið að tryggja launafólki ævilanga afkomu og sameiginlega tryggingavernd án þess að skapa óhóflega byrði á ríkissjóð eða komandi kynslóðir. Ef stjórnvöld vilja hverfa frá þeirri stefnu og færa stærri hluta skyldubundins lífeyrissparnaðar úr samtryggingu yfir í einstaklingsbundna séreign er það grundvallarbreyting á íslenska lífeyriskerfinu. Slíka breytingu á að ræða sem slíka. Hún mun rýra þá tryggingavernd sem meginþorri launafólks nýtur nú um stundir og verkalýðshreyfingin mun vinna gegn slíkri þróun af öllu afli. Alþýðusamband Íslands gerði fjármála- og efnahagsráðherra grein fyrir fyrirvörum sínum við áformin. Rétt er að vekja sérstaka athygli á þeim sjónarmiðum nú þar eð kosning meðal sjóðfélaga Almenna Lífsverks um sameininguna fór fram í síðustu viku. Í SL lífeyrissjóði er málið í höndum stjórnar sjóðsins. Sameiningin er hins vegar jafnframt háð lagabreytingum á Alþingi og getur því ekki orðið eingöngu með ákvörðun stjórna sjóðanna tveggja. Ríkisstjórn og Alþingi taka beina afstöðu til sameiningarinnar með lagasetningu áður en til hennar kemur. Einstakt hlutverk SL lífeyrissjóðs SL lífeyrissjóður, áður Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, gegnir sérstöku hlutverki innan íslenska lífeyrissjóðakerfisins. Sjóðnum er lögum samkvæmt ætlað að taka við og innheimta iðgjöld þeirra sem ekki hafa fullnægt skyldutryggingu sinni hjá öðrum lífeyrissjóði eða þegar ekki liggur fyrir til hvaða sjóðs iðgjald eigi að renna. Þetta hlutverk greinir SL lífeyrissjóð frá öðrum sjóðum og skiptir þess vegna sköpum þegar stjórnskipan hans og framtíðarfyrirkomulag eru til umræðu. Íslenska lífeyriskerfið byggir á þremur grunnstoðum: skylduaðild, sjóðssöfnun og samtryggingu. ASÍ hefur lagt ríka áherslu á að samtryggingin sé grunnur kerfisins. Séreign getur verið mikilvæg viðbót, en hún gegnir öðru hlutverki og getur aldrei komið í stað þeirrar sameiginlegu og ævilöngu tryggingaverndar sem felst í almennu samtryggingarkerfi. Þarna liggur kjarni málsins. Uppbygging réttinda í sjóðunum tveimur er mjög ólík. Hjá SL rennur skylduiðgjaldið í samtryggingu. Samkvæmt fyrirliggjandi tillögu yrði réttindamyndun í sameinuðum sjóði hins vegar með þeim hætti að tæpur helmingur iðgjaldsins rynni í séreign. Fyrir sjóðfélaga SL snýst málið því ekki aðeins um rekstrarfyrirkomulag heldur um sjálfa uppbyggingu lífeyrisréttinda þeirra og þá tryggingavernd sem þeim fylgir. Sú breyting gengur þvert á gildandi fyrirkomulag á nánast öllum íslenskum vinnumarkaði. Hún gengur gegn því fyrirkomulagi sem kveðið er á um í kjarasamningi ASÍ og SA um lífeyrismál og því fyrirkomulagi sem gildir í kjarasamningsbundnum lífeyrissjóðum opinberra starfsmanna. Þegar minni hluti iðgjaldsins rennur í samtryggingu minnkar að sama skapi sú tryggingavernd sem á henni byggist. Þar er um að ræða ævilangan ellilífeyri, tekjutengdan örorkulífeyri og rétt til maka- og barnalífeyris. Ef til slíkrar breytingar á að koma þarf um hana skýra og efnislega umræðu á forsendum hagsmuna sjóðfélaganna. Lítið hefur farið fyrir umræðu um sérstakt hlutverk SL og þann grundvallarmun sem er á uppbyggingu réttinda í sjóðunum tveimur. Sameiningin virðist að þessu leyti hafa orðið markmið í sjálfu sér. Erfitt er að sjá fyrir sér að sameining hefði komið til greina fyrir Almenna Lífsverk ef niðurstaðan hefði verið sú að réttindamyndun sjóðsins yrði færð að fyrirkomulagi SL og allt skylduiðgjaldið rynni framvegis í samtryggingu. Hvers vegna á þá að teljast sjálfsagt að SL færist í hina áttina? Vill ríkisstjórnin kerfisbreytingu? Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ekki aðeins fylgst með málinu úr fjarlægð. Hann hefur undirritað viljayfirlýsingu um að beita sér fyrir þeim lagabreytingum sem þarf svo sameiningin geti orðið að veruleika. Þá hlýtur að vakna spurning um hvort ríkisstjórnin hafi í raun mótað nýja stefnu í lífeyrismálum. Vill ríkisstjórnin færa stærri hluta skyldubundins lífeyrissparnaðar úr samtryggingu yfir í séreign? Vill hún draga úr vægi þeirrar sameiginlegu tryggingaverndar sem íslenska lífeyriskerfið byggir á og er meginstyrkleiki kerfisins? Ef svo er, á að segja það skýrt og taka efnislega umræðu um þá stefnubreytingu við aðila vinnumarkaðarins og almenning. Grundvallarbreyting á íslenska lífeyriskerfinu getur aldrei orðið hliðarafurð sameiningar tveggja lífeyrissjóða. Grunnspurningar um lífeyriskerfið Fyrirhuguð sameining SL lífeyrissjóðs og Almenna Lífsverks snýst því um meira en rekstur og mögulega hagræðingu tveggja lífeyrissjóða. Hún vekur grundvallarspurningar um þróun íslenska lífeyriskerfisins, hlutverk samtryggingar og ábyrgð stjórnvalda á því að standa vörð um grunnstoðir kerfisins. Áður en lengra er haldið þarf að svara því hvers vegna breyta eigi sérstöku hlutverki SL og uppbyggingu réttinda sjóðfélaga hans. Sameining lífeyrissjóða er einskis virði ef verðið er minni tryggingavernd fyrir sjóðfélagana og veikara lífeyriskerfi fyrir samfélagið allt. Grunnstoðir lífeyriskerfisins eiga að ráða för. Höfundur er forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Finnbjörn A. Hermannsson Mest lesið Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar