Lífið

Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin?

Atli Ísleifsson skrifar
Þessa vikuna er tilkynnt um hverjir hljóta Nóbelsverðlaun í ár í hinum ýmsu flokkum.
Þessa vikuna er tilkynnt um hverjir hljóta Nóbelsverðlaun í ár í hinum ýmsu flokkum. Getty

Nóbelsverðlaunin eru meðal virtustu alþjóðlegu verðlauna sem veitt eru fyrir framúrskarandi framlag til vísinda, bókmennta og friðar. Þau byggja á erfðaskrá sænska uppfinningamannsins og iðnjöfursins Alfreds Nobel og voru fyrst veitt árið 1901. Verðlaun eru veitt í eðlisfræði, efnafræði, lífeðlisfræði eða læknisfræði, bókmenntum og friðarstarfi.

Árið 1969 bættust síðan við verðlaun sænska seðlabankans í hagfræði í minningu Alfreds Nobel. Nóbelsverðlaunin eru veitt ár hvert og verðlaunahafar fá meðal annars verðlaunapening, skírteini og peningaverðlaun.

Hér á landi vakti það að sjálfsögðu sérstaklega athygli í morgun þegar tilkynnt var að hin kanadíska Anne Carson, sem er íslenskur ríkisborgari og býr í vesturbæ Reykjavíkur, hefði hlotið bókmenntaverðlaun Nóbels í ár.   

En hvað veistu um Nóbelsverðlaunin?

Hvað veistu um…? er liður á Vísi á mánudags- og fimmtudagskvöldum þar sem lesendur fá tækifæri til að kanna þekkingu sína á ákveðnu máli og geta skorað svo á vini, fjölskyldu og samstarfsmenn.

Áður hefur meðal annars verið spurt um:

Öll fyrri kvissin má svo finna á undirsíðu Hvað veistu um...?

Taktu Nóbelsverðlaunakvissið að neðan!


Tengdar fréttir

Hvað veistu um... íslenska hönnun?

Íslensk hönnun hefur á undanförnum áratugum vakið sífellt meiri athygli, bæði hér heima og erlendis. Hún einkennist meðal annars af hugmyndaauðgi, einfaldleika og sterkum tengslum við íslenska náttúru og menningu.

Hvað veistu um... Mean Girls?

Bandaríska unglingagamanmyndin Mean Girls frá árinu 2004 sem hefur fyrir nokkru síðan öðlast hálfgerða „költstöðu“ meðal þeirra sem voru ungir á þeim tíma sem myndin kom út.

Hvað veistu um... Pólland?

Pólland er í hópi stærri og fjölmennari ríkja Evrópu, þekkt fyrir sögu sína, fallegar borgir og sterka menningarhefð.

Hvað veistu um… kvik­mynda­hátíðir?

Kvikmyndahátíðir eru mikilvægur vettvangur fyrir kvikmyndagerðarfólk víðs vegar að úr heiminum til að sýna verk sín, hitta samstarfsfólk og kynna nýjar hugmyndir og sjónarhorn.

Hvað veistu um… Djúpa­vog?

Djúpivogur er lítið og fallegt þorp á sunnanverðum Austfjörðum, þekkt fyrir rólegt yfirbragð, fallegt umhverfi og sterka tengingu við sjávarútveg.

Hvað veistu um… Titanic?

Titanic var breskt farþegaskip sem talið var eitt það stærsta og glæsilegasta á sínum tíma. Skipið lagði af stað í sína jómfrúarsiglingu árið 1912 og eins og endaði á því að sökkva á Norður-Atlantshafi.

Hvað veistu um... göngu­leiðir?

Líklegt má telja að fjöldi fólks hafi lagt land undir fót í sumar og notið íslenskrar náttúru á einni af þeim fallegu, merktu gönguleiðum sem er að finna víða um land. Gönguferðir eru enda vinsæl leið til að upplifa landið, fá frí frá amstri dagsins, hvort sem það er í einveru eða góðum félagsskap.

Hvað veistu um... Snæ­fells­nes?

Snæfellsnes er langt og fallegt nes á Vesturlandi með Faxaflóa sunnanmegin og Breiðafjarðar fyrir norðan. Meðfram nesinu eru svo fjallgarður og þar yst má finna Snæfellsjökul og þjóðgarðinn þar um kring.

Hvað veistu um… pasta?

Líklegt má telja að pasta sé á borðum fjölmargra Íslendinga í dag enda auðvelt að elda og hentar vel með margs konar sósum, grænmeti, kjöti eða sjávarfangi.

Hvað veistu um... Kristrúnu Frosta­dóttur?

Kristrún Frostadóttir hefur gegnt embætti forsætisráðherra Íslands í um eitt og hálft ár, en hún hefur leitt ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins frá árslokum 2024.

Hvað veistu um… árið 2010?

Tíminn líður og nú eru víst liðin sextán ár frá árinu 2010 – árinu þegar WikiLeaks var reglulega í fréttum, Aulinn ég var frumsýndur og kosningar til stjórnlagaþings fóru fram.

Hvað veistu um… textana hans Bubba?

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens er einn áhrifamesti texta- og tónlistarmaður Íslendinga. Textar hans eru margir fyrir löngu orðnir ódauðlegir þar sem hann fjallar meðal annars um ástina, söknuð, einmanaleika, samfélagið og lífsbaráttuna almennt.

Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi?

Kirkjur hafa um aldir verið meðal helstu kennileita íslenskra bæja og byggðarlaga. Þær standa oft á áberandi stað og setja svip sinn á umhverfið með sérkennilegum arkitektúr og sögu.

Hvað veistu um… Dis­n­ey-myndirnar frá tíunda ára­tugnum?

Teiknimyndir Disney frá tíunda áratug síðustu aldar eru meðal þeirra vinsælustu sem fyrirtækið hefur framleitt. Á tímabilinu komu út margar vinsælar teiknimyndir þar sem falleg myndvinnsla, sterkar persónur og eftirminnileg tónlist sameinuðust í eitt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.