Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Aron Guðmundsson skrifar 2. október 2026 17:06 Rui Pinto, á myndinni vinstra megin, kom upp um umtalsverð brot Manchester City á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar. Á myndinni til hægri má sjá núverandi stjórnarformann Manchester City með fyrrverandi knattspyrnustjóra liðsins, Pep Guardiola Vísir/Samsett Uppljóstarinn Rui Pinto, maðurinn á bakvið vefsíðuna Football Leaks sem lak meðal annars gögnum sem komu upp um brot Manchester City á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar, mun ekki njóta verndar í heimalandi sínu mikið lengur. Hann óttast um öryggi sitt og er staða hans sögð grafalvarleg.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá lögfræðingum Rui Pinto en þeim hefur verið gert kunnugt að sérstök öryggisvernd, sem Pinto hefur notið á vegum portúgalska ríkisins sem uppljóstrari, muni enda eftir rúma viku. Pinto er maðurinn á bak við lekann af umtalsverðu magni gagna um Manchester City sem varð að lokum til þess að enska úrvalsdeildin höfðaði mál gegn félaginu og hefur það nú verið fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum. Þá hefur Pinto einnig komið upp um mál á borð við skattsvik Cristiano Ronaldo. Eftir uppljóstranir sínar hefur Pinto notið öryggisverndar í Portúgal frá því árið 2020 og allt þar til núna. Án fyrirvara er verið að svipta hann þeirri vernd að sögn lögfræðinga hans sem segja stöðuna alvarlega. „Staða hans er nú grafalvarleg,“ segir í yfirlýsingu lögfræðinga Pinto. „Í apríl síðastliðnum var ráðist á hann í Lissabon. Afhjúpanir hans vörðuðu valdamikla einstaklinga með gríðarleg fjárráð og mörg af þeim dómsmálum sem af þeim spruttu eru enn í gangi, eins og sést til að mynda á úrskurði óháðrar nefndar ensku úrvalsdeildarinnar varðandi Manchester City sem kveðinn var upp fyrir örfáum dögum. Rui Pinto hefur nú verið sviptur vernduðu dvalarheimili sínu fyrirvaralaust og er hann kominn í afar ótrygga stöðu. Hann verður því berskjaldaðri en nokkru sinni fyrr síðan 2020.“ Það hafi verið samstarf Pinto með portúgalska ríkinu sem varð til þess að hann þurfti í kjölfarið vernd. „Afhjúpanir hans, sem fjölmörg dóms-, skatta- og íþróttayfirvöld víðs vegar um Evrópu hafa nýtt sér, fyrst og fremst í Frakklandi, hafa stuðlað að auknu gagnsæi og heilindum í fótbolta. Ríkin sem nutu góðs af aðgerðum hans geta ekki einfaldlega snúið baki við þeim sem tók nauðsynlega áhættu til að koma þessum staðreyndum í ljós.“ Lögfræðingar Pinto hafa áfrýjað ákvörðun portúgalskra yfirvalda að svipta hann öryggisvernd. Yfirlýsingu þeirra, sem birtist í færslu á samfélagsmiðlareikningi Rui Pinto á X, má sjá hér fyrir neðan: O comunicado de imprensa dos meus advogados, Francisco Teixeira da Mota, Luísa Teixeira da Mota, William Bourdon e Vincent Brengarth, relativamente às acções vergonhosas tomadas contra mim pelo Estado português na quarta-feira:COMUNICADO DE IMPRENSALisboa e Paris, 2 de…— Rui Pinto (@RuiPinto_FL) October 2, 2026
Enski boltinn Fjármál Manchester City til rannsóknar Manchester City Fótbolti Portúgal Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Sjá meira