Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Sindri Sverrisson skrifar 3. október 2026 22:31 Bruno Fernandes og Cristiano Ronaldo hafa gengið í gegnum margt saman. Getty/Michael Miller Bruno Fernandes hældi Cristiano Ronaldo á hvert reipi á blaðamannafundi í dag og sagði enga sundrung í portúgalska landsliðinu. Ronaldo væri merkasta táknmynd Portúgals og yrði það um alla tíð.
Ronaldo dró sig skyndilega úr portúgalska hópnum og flaug heim degi fyrir leik við Danmörku í Kaupmannahöfn í vikunni vegna ósættis við landsliðsþjálfarann Jorge Jesus. Ronaldo hafði þá ekkert komið við sögu í 2-1 sigri gegn Noregi í Osló. Ronaldo hefur skorað 146 mörk í 234 landsleikjum, sem er met, og unnið EM 2016 og Þjóðadeildina tvisvar. Nú gæti landsliðsferlinum verið lokið hjá þessum 41 árs gamla leikmanni en virðingin sem hann nýtur meðal Fernandes og félaga er ákaflega mikil. Ræddi við Ronaldo og lofaði hann „Varðandi Cristiano, þá átti ég samtal við hann,“ sagði Fernandes á blaðamannafundi í dag, fyrir leikinn við Noreg í Portúgal annað kvöld. „Það sem ég sagði við hann, og það sem ég endurtek hér, er að sama hvað gerist, þá mun Cristiano Ronaldo aldrei hætta að vera merkasta táknmynd landsliðsins okkar, fótboltans okkar og landsins, fyrir það sem hann hefur gert ekki aðeins í Portúgal heldur um allan heim. Hann á sérstakan sess ekki aðeins meðal þeirra bestu frá upphafi, heldur einnig í hjörtum allra Portúgala, og það mikilvægasta er að við hættum að skipta liði. Það er engin sundrung í landsliðinu. Það er ein heild og verður það áfram, þrátt fyrir allan hávaða sem kann að koma að utan. Við stöndum utan við þessar deilur en það sem ég bið um er að þjóðin sundrist ekki, taki ekki afstöðu, heldur virði allar hliðar. Cris er og verður stærsta táknmynd landsliðsins okkar, hann á skilið virðingu allra, óháð því hverjum líkar betur eða verr við hann,“ sagði Fernandes. Vill ræða um Ronaldo eftir leikina Þjálfarinn Jesus sagði einnig að Ronaldo væri táknmynd Portúgals en að rétti tíminn til að ræða um hann væri eftir yfirstandandi landsleikjatörn. „Ég ætla að einbeita mér að liðinu og mótherjunum frá Noregi sem eiga eitt af fimm bestu liðum Evrópu. Það er vandamálið sem ég glími við núna,“ sagði hinn 72 ára gamli Jesus.
Þjóðadeild karla í fótbolta Fótbolti Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira