Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Freyja Þórisdóttir skrifar 4. október 2026 14:52 Náttúruvársérfræðingurinn Sigríður Magnea Óskarsdóttir segir ekki nein merki um gosóróa en að ef til eldgoss kæmi þá yrði það með svipuðum hætti og í fyrri atburðum. Vísir/Vilhelm/Aðsend Skjálfti sem lét finna fyrir sér á höfuðborgarsvæðinu í nótt átti upptök sín í Brennisteinsfjöllum en náttúruvársérfræðingur segir sprungur á svæðinu hrökkva reglulega. Verið sé að bíða eftir stórum skjálfta á svæðinu en enginn gosórói hafi mælst og því ekki endilega útlit fyrir eldgos í náinni framtíð. „
Árið 1968 var stór skjálfti á svæðinu, um sex að stærð, og svo aftur árið 1929, svipaðri stærð, sem fannst vel. Þannig að við erum svona að bíða eftir því en hvort það gerist verður bara að koma í ljós,“ segir Sigríður Magnea Óskarsdóttir náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands í samtali við fréttastofu. Spenna safnast upp Skjálftinn sem fannst víða um höfuðborgarsvæðið um klukkan tuttugu mínútur í eitt eftir miðnætti mældist um 3,4 að stærð en hún segir ekki óvenjulegt að fólk hafi fundið frekar vel fyrir honum. „Þetta er náttúrulega nær höfuðborgarsvæðinu heldur en virknin við Grindavík þannig að það er ekkert óeðlilegt að við finnum frekar fyrir honum heldur en virkninni þar,“ segir Sigríður. Brennisteinsfjöllin séu merkilegt jarðskjálftasvæði og það sé svolítið síðan virkni hafi mælst þar síðast. Spenna hafi safnast upp á svæðinu. „Við fengum skjálfta af svipaðri stærð í ágúst í fyrra. Sá var um 3,8 og það hafa alveg orðið hrinur þarna reglulega á síðustu sex árum,“ segir hún en bætir við: „En svona í samhengi við atburðina á Reykjanesi þá er alveg innistæða fyrir stórum skjálfta en hann hefur látið bíða eftir sér og gæti alveg látið bíða eftir sér lengi enn.“ Röð skjálfta ekki áhyggjuefni Hún segir verulega erfitt að segja til um hvenær stórir skjálfar séu væntanlegir. Eruð þið þá að reikna með að það kæmi stór skjálfti og að því myndi fylgja eldgos? „Nei, ekkert endilega, þetta eru sem sagt svona taktískar hreyfingar í tengslum við flekaskilin,“ útskýrir hún. Þrátt fyrir að margir skjálftar hafi riðið yfir suðvesturhorn landsins síðasta sólarhringinn eru ekki endilega neinar ástæður fyrir því að svo stutt sé á milli þeirra. Er þetta algjör tilviljun að það séu nokkrir skjálftar núna á þessum sólarhring? „Já, stundum eru margir skjálftar á landinu og stundum lítið. Það er bara tilviljanakennt,“ segir hún og bætir við að það sé ekkert sem bendi til þess að eldgos sé væntanlegt. „Það er allavega ekkert af okkar mælitækjum sem sýnir neinn gosóróa neins staðar. Ekki eins og staðan er núna.“ Aðspurð hvernig sú sviðsmynd sem þykir enn líklegust samkvæmt ykkar nýja hættumati fyrir Grindavík horfi við henni staðfestir hún að eldgos sé enn talið líklegast. „Já, við gerum ráð fyrir því að ef til eldgoss kæmi þá yrði það með svipuðum hætti og verið hefur í fyrri atburðum,“ segir Sigríður en ítrekar að það sé ekkert hægt að segja til um hvenær það yrði.
Eldgos og jarðhræringar Jöklar á Íslandi Tengdar fréttir Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Nýtt hættumat tók gildi í dag, þann 30. september, en hættuvægi vegna sprungna og jarðfalls innan Grindavíkur hefur verið endurmetið með tilliti til sprunguviðgerða. Við breytinguna lækkar heildarhættustig fyrir Grindavík en heildarhætta er áfram metin töluverð. Nýtt kvikuhlaup gæti endað með eldgosi en það er ekki hægt að segja til um hvenær það gæti orðið. 30. september 2026 21:03 Katla skelfur Nokkrir skjálftar hafa mælst í Mýrdalsjökli í kvöld, þá aðallega í Kötluöskju. 3. október 2026 21:45 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Sjá meira
Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Nýtt hættumat tók gildi í dag, þann 30. september, en hættuvægi vegna sprungna og jarðfalls innan Grindavíkur hefur verið endurmetið með tilliti til sprunguviðgerða. Við breytinguna lækkar heildarhættustig fyrir Grindavík en heildarhætta er áfram metin töluverð. Nýtt kvikuhlaup gæti endað með eldgosi en það er ekki hægt að segja til um hvenær það gæti orðið. 30. september 2026 21:03
Katla skelfur Nokkrir skjálftar hafa mælst í Mýrdalsjökli í kvöld, þá aðallega í Kötluöskju. 3. október 2026 21:45