Erlent

Hand­tekin í Banda­ríkjunum grunuð um njósnir

Bjarki Sigurðsson skrifar
Wanying Zhang var handtekin í gær og fagnaði Kash Patel, yfirmaður Alríkislögreglu Bandaríkjanna, handtökunni.
Wanying Zhang var handtekin í gær og fagnaði Kash Patel, yfirmaður Alríkislögreglu Bandaríkjanna, handtökunni. AP

Kona á fertugsaldri var í gær handtekin í Bandaríkjunum, grunuð um njósnir fyrir kínverska ríkið. Á hún að hafa sent myndir af bílum og húsum sem fjölskylda forseta Taívan notaðist við. 

Wanying Zhang er talin hafa elt son forseta Taívan í fyrra þegar hann ferðaðist til Seattle-borgar í Washington-ríki. Hún er sögð hafa sent ljósmyndir og aðrar upplýsingar á yfirvöld í Kína og var handtekin þegar hún var á leið um borð í flugvél til Kína. 

Kínverjar hafa lengi gert tilkall til Taívan en þrátt fyrir að Bandaríkin hafi slitið formlegum tengslum við Taívan fyrir tæpum fimmtíu árum eru ríkin miklir bandamenn. Kínverjar vilja taka yfir eyríkið með hervaldi en Bandaríkjamenn vilja það ekki. 

Zhang er sögð hafa brotið alríkislög með gjörðum sínum og mun hún koma fyrir dómara í dag.

Í færslu á samfélagsmiðlum fagnaði Kash Patel, yfirmaður Alríkislögreglu Bandaríkjanna, handtökunni. Sagði hann þetta vera skýr skilaboð til erlendra andstæðinga Bandaríkjanna um að það væri ekki hægt að stunda njósnir í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×