Skoðun

Ríkis­stjórnin á að vita betur

Indriði Einar Reynisson skrifar

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur segir í stefnuyfirlýsingu sinni að unnið verði að því þjóðarmarkmiði að tryggja öllum landsmönnum fastan heimilislækni. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs fer hins vegar lítið fyrir stuðningi við þetta þjóðarmarkmiðið. Margt bendir jafnframt til þess að þeim árangri sem þó hefur náðst varðandi fjölgun heimilislækna verði að öllu óbreytttu varpað fyrir róða.

Metnaðurinn dugir skammt einn og sér

Þjóðarmarkmið um fastan heimilislækni fyrir alla landsmenn er metnaðarfullt og mikilvægt fyrir þjóðarhag. Augljóslega verður því hins vegar ekki náð, nema mannafli og fjármögnun fylgi með. Heimilislækningar mynda undirstöður heilbrigðisþjónustunnar. Hlutverk heimilislækna er að byggja upp virk tengsl við almenning, fólkið í landinu, á samfelldum grunni svo sinna megi hverjum og einum á forsendum þess einstaklings þá og þegar á þarf að halda. Þess vegna skiptir staða heimilislækninga okkur öll máli sem mikilvægustu grunnstoð heilbrigðiskerfisins.

Þörf áfram mikil á fleiri heimilislæknum

Íslenskt sérnám í heimilislækningum hefur vaxið hratt og eru nú um 120 læknar skráðir, nær þrefalt fleiri en fyrir áratug. Þetta er einn mikilvægasti árangur íslenskra heimilislækninga á síðustu árum og afrakstur langrar uppbyggingar sérnámsins á vegum kennslustjóra, handleiðara og heilbrigðisstofnana. Þörfin er þó áfram mikil og í raun sér hvergi nærri fyrir þeim læknaskorti sem ríkt hefur í heimilislækningum. Nýleg samantekt Þórðar Gísla Ólafssonar heimilislæknis, sem birtist í júní sl. í Læknablaðinu, leiðir í ljós að 216 heimilislæknar í 181 stöðugildi eru starfandi rúmlega á hverja 400 þúsund íbúa. Það samsvarar rúmlega 2.200 íbúum á hvert stöðugildi.

Til samanburðar má nefna, að Félag íslenskra heimilislækna hefur sett fram sem viðmið um 1.200 einstaklinga í þéttbýli og 800 í dreifbýli, sem er sambærilegt því sem miðað er við á hinum Norðurlöndunum.

Rýfur tengslin við almenning

Við sem störfum í heilsugæslunni þekkjum hvað þessar tölur þýða í reynd. Stórir sjúklingahópar gera okkur erfiðara fyrir að veita þá einstaklingsbundnu, þ.e. persónulegu og samfelldu heilbrigðisþjónustu, sem við vitum að skiptir svo miklu máli fyrir tengslamyndun læknis og skjólstæðings. Það er því ekki nóg að horfa á hversu margir hefja sérnám. Námið tekur fimm ár, meðalstarfshlutfall heimilislækna er 83%, læknar fara á eftirlaun og einhverjir leita í önnur störf eða til annarra landa. Þórður áætlar að til þess að ná viðmiði um 1.500 íbúa á hvert stöðugildi þurfi um 31 heimilislæknir að ljúka sérnámi á hverju ári næsta áratug, en um 41 ef miðað er við 1.200 íbúa.

Úr öskunni í eldinn

Þess vegna er sérstaklega óheppilegt ef vanefndir í fjármögnun mynda flöskuháls eftir að okkur hefur loksins tekist að byggja upp öflugt sérnám. Heimilislæknar hafa þegar bent á dæmi þess að ekki hafi verið hægt að ráða sérnámslækna í heimilislækningum eða nýútskrifaða sérfræðinga vegna fjárhagsstöðu stofnana. Sérnámslæknarnir þurfa auk þess að geta lokið sjúkrahúshluta námsins, en nú eru dæmi um að fyrirhuguðum námsvistum á Landspítala hafi verið aflýst, frestað eða þær styttar vegna skorts á plássi og fjármagni. Það væri öfugsnúið að laða unga lækna inn í heimilislækningar en geta síðan hvorki tryggt þeim námsvist til að ljúka náminu né störf þegar sérfræðiviðurkenningin er komin í hús.

Ríkisstjórnin á að vita betur

Þegar sú hækkun sem gert er ráð fyrir til heilsugæslunnar í fjárlagafrumvarpi næsta árs er sett í samhengi kemur í ljós að fjármagn til grunnþjónustu heilsugæslunnar á hvern skráðan einstakling hefur lækkað. Árið 2023 lagði Kristrún Frostadóttir ásamt fleiri þingmönnum úr stjórnarandstöðunni fram þingsálykktunartillögu á Alþingi, þar sem skorað var á þáverandi ríkisstjórn að vinna að því þjóðarmarkmiði að allir Íslendingar fengju heimilislækni og heimilisteymi á heilsugæslu. Jafnframt skyldi skilgreina viðmið um æskilegan fjölda skjólstæðinga á hvern heimilislækni og styrkja sérnám í heimilislækningum. Tillagan sýnir að þekking ætti að vera til staðar innan ríkisstjórnarinnar um mikilvægi þjóðarmarkmiðsins og vonandi einnig metnaður til að fylgja því eftir í fjárlögum næsta árs.

Höfundur er í stjórn Félags íslenskra heimilislækna.




Skoðun

Skoðun

SÁÁ

Ingibergur Þorkelsson skrifar

Sjá meira


×