Skoðun

Leigubremsa inn­leidd á Ís­landi!

Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Á Alþingi er komið fram frumvarp þar sem innleidd er leigubremsa. Leigubremsa er hugsuð þannig að takmarkandi sé með hvaða hætti leiguverð má þróast. Meirihluti íbúðarhúsnæðis sem leigt er út sem íbúðarhúsnæði eða annað húsnæði er bundið vísitölu neysluverðs (sem mælir verðólgu í samfélaginu). Þar af er 94,5% samninganna með mánaðarlegri hækkun leiguverðs, sem sagt verðtryggð leiga sem breytist í hverjum einasta mánuði.

Nú ætlum við að höggva á þessar sjálfvirku hækkar með því að annars vegar banna mánaðarlega breytingu leiguverðsins sem og að setja inn hámark á það hversu mikið leiguverð getur hækkað á hverju ári. Verði frumvarpið að lögum þá mun leiguverð aðeins mega hækka einu sinni á ári og þá að hámarki um verðlagsbreytingar þess tímabils.

Það skiptir mjög miklu máli að samfélagið komi í veg fyrir þær sjálfvirku hækkanir verðlags sem við höfum búið við of lengi. Þið hafið ítrekað heyrt að verðbólga sé þrálát, líkt og hún er í dag. Hluti vandans er hversu vísitölubundin við erum sem þjóð.

Það má vera að þörf hafi verið að verðtryggja ýmsa hluti hér á árum áður en það er á sama tíma mikilvægt að við komumst út úr þeim vítahring sem við erum í hvað þetta varðar.

Því er gríðarlega mikilvægt að leigubremsa komist á og að svigrúm til hækkana verði takmarkað til lengri tíma litið. Þetta er eitt skref sem stigið er og mun draga úr vægi verðtryggingar. Það þarf að gera meira og við höfum nú þegar gripið til fleiri aðgerða til þess að koma böndum á leigumarkaðinn.

Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar.




Skoðun

Skoðun

SÁÁ

Ingibergur Þorkelsson skrifar

Sjá meira


×