Innlent

Einn í haldi eftir hand­töku í flug­stöðinni

Birgir Olgeirsson skrifar
Maðurinn var handtekinn í flugstöð Leifs Eiríkssonar við komuna frá Portúgal í gærkvöldi.
Maðurinn var handtekinn í flugstöð Leifs Eiríkssonar við komuna frá Portúgal í gærkvöldi. Vísir/Vilhelm

Lögreglan ákveður síðar í dag hvort hún krefst gæsluvarðhalds yfir manninum sem var handtekinn í flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærkvöldi. Hann er sá eini sem er nú í haldi vegna rannsóknar á fíkniefnasölu og peningaþvætti.

Maðurinn var handtekinn þegar hann kom með flugi frá Portúgal. Lögreglan ætlaði að handtaka hann í aðgerðunum í september en hann var þá erlendis.

Öllum sautján sleppt

Sautján manns voru handteknir vegna málsins 22. september. Sex þeirra sátu í gæsluvarðhaldi. Öllum sautján hefur síðan verið sleppt úr haldi vegna málsins og síðustu tveir voru látnir lausir á föstudag.

Lögreglan sagði þá að ekki væri lengur talin þörf á gæsluvarðhaldi yfir þeim vegna rannsóknarinnar. Rannsóknin héldi þó áfram. Ágætlega hefði gengið að safna gögnum en málið væri umfangsmikið og það tæki tíma að rannsaka það.

Hald lagt á peninga og fíkniefni

Lögreglan hefur gert húsleit á nokkrum stöðum og lagt hald á peninga, fíkniefni og aðra muni. Rannsóknin beinist að sölu og dreifingu fíkniefna og peningaþvætti.

Meðal þeirra sem voru handteknir í september var framkvæmdastjóri hjá bílaumboðinu BL. Hann var settur í tímabundið leyfi frá störfum. BL sagði fyrirtækið sjálft ekki eiga aðkomu að málinu og að það myndi aðstoða lögregluna eftir þörfum.


Tengdar fréttir

Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð

Lögreglan er sögð hafa handtekið athafnamann við komu til landsins í Leifsstöð í kvöld í tengslum við stórt peningaþvættis- og fíkniefnamál sem er til rannsóknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×