Innlent

Bein út­sending: Af minkum og mönnum

Atli Ísleifsson skrifar
Á málþinginu verður meðal annars fjallað um stöðu greinarinnar, þróun hennar síðasta áratug, dýravelferð, efnahagslega þætti og hvað framtíðin kunni að bera í skauti sér.
Á málþinginu verður meðal annars fjallað um stöðu greinarinnar, þróun hennar síðasta áratug, dýravelferð, efnahagslega þætti og hvað framtíðin kunni að bera í skauti sér. Vísir/Lýður Valberg

Samtök um dýravelferð, Humane World for Animals og Norræna húsið standa fyrir málþingi um loðdýrarækt á Íslandi í dag. Þar verður meðal annars fjallað um stöðu greinarinnar, þróun hennar síðasta áratug, dýravelferð, efnahagslega þætti og hvað framtíðin kunni að bera í skauti sér.

Málþingið hefst klukkan 17 og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum að neðan.

„Á dagskrá verða erindi íslenskra og erlendra sérfræðinga, stuttmyndir og tónlistaratriði með Ragnheiði Gröndal. Einnig fara fram pallborðsumræður þar sem fulltrúar stjórnmálaflokka ræða málefnið og svara spurningum.

Meðal erlendra gesta eru Mike Moser, sem starfaði um árabil innan alþjóðlega loðdýraiðnaðarins og hagfræðingurinn Artūrs Kaņepājs sem hefur unnið ítarlega efnahagsgreiningu á loðdýrarækt á Íslandi og mun kynna helstu niðurstöður hennar á málþinginu,“ segir í tilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×