Innlent

Úr­skurðaður í far­bann

Atli Ísleifsson skrifar
Karlmaðurinn eftir að dómari hafði samþykkt kröfu lögreglu um gæsluvarðhald yfir honum fyrr í vikunni.
Karlmaðurinn eftir að dómari hafði samþykkt kröfu lögreglu um gæsluvarðhald yfir honum fyrr í vikunni. Vísir/Sigurjón

Karlmaður á sextugsaldri, sem handtekinn var í Flugstöð Leifs Eiríkssonar síðastliðið sunnudagskvöld í tengslum við rannsókn á máli tengdu fíkniefnasölu og peningaþvætti, hefur verið úrskurðaður í farbann til 23. október. Ekki var farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Maðurinn var síðastliðinn mánudag úrskurðaður í gæsluvarðhald í þágu rannsóknar málsins en það rann út í dag. 

Maðurinn var handtekinn þegar hann kom með flugi frá Portúgal. Lögreglan ætlaði að handtaka hann í umfangsmiklum aðgerðum 22. september en hann var þá staddur erlendis. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur hann verið ytra í einhvern tíma en hann er með skráð símanúmer í Portúgal.

Alls voru sautján manns handteknir vegna málsins 22. september. Sex þeirra sátu í gæsluvarðhaldi. Öllum sautján hefur síðan verið sleppt úr haldi vegna málsins og síðustu tveir voru látnir lausir fyrir sléttri viku.


Tengdar fréttir

Portúgalsfarinn á bak við lás og slá

Karlmaður á sextugsaldri, sem handtekinn var í flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærkvöldi, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 9. október. Hann er nú sá eini sem er í haldi vegna rannsóknar á fíkniefnasölu og peningaþvætti en alls voru sautján handteknir vegna málsins. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×