Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Kjartan Kjartansson skrifar 8. október 2026 07:55 Bandaríska utanríkisráðuneytið lét sendiráð vara nokkur Evrópuríki við að taka þátt í ráðstefnu um upplýsingafals því ráðuneytinu mislíkaði umræður sem áttu að fara fram þar. Vísir/EPA Evrópusambandið, Litáen og Kanada hættu við að taka þátt í ráðstefnu um upplýsingafals eftir að fulltrúar Bandaríkjastjórnar beittu þau þrýstingi. Ástæðan var pallborðsumræður þar sem Bandaríkjunum var lýst sem upplýsingafalsógn.
Ráðstefnan #Disinfo2026 fer fram í Vilníus, höfuðborg Litáens og hófst í gær. Þar eru til umræðu tilraunir ýmissa aðila til þess að bregla almannaumræðu, meðal annars með upplýsingafalsi á netinu. Í lýsingu á einni pallborðsumræðu á ráðstefnunni var Bandaríkjastjórn lýst sem svokölluðum FIMI-geranda, erlendum aðila sem reynir að bjaga opinbera umræðu, meðal annars með upplýsingafalsi. FIMI er hugtak sem Evrópusambandið notar um erlenda andstæðinga eins og Rússland og Kína. Á síðustu stundu hættu Evrópusambandið, Kanada og Litáen við þátttöku. Evrópska blaðið Politico segir að ástæðan hafi verið orðsending sem bandarísk sendiráð sendu nokkrum Evrópuríkjum þar sem þau spurðu stjórnvöld hvort að þau væru sammála því að Bandaríkin væru upplýsingaógn. Mislíkaði bandaríska utanríkisráðuneytinu að vera lagt að jöfnu við Kína og Rússland og taldi það gera lítið úr umfangi tilrauna þeirra ríkja til þess að hafa áhrif á lýðræðið í vestrænum ríkjum. Segja dagskrána ekki hafa endurspeglað stefnu ríkjanna Pallborðsumræðurnar sem fóru fyrir brjóstið á Bandaríkjamönnunum fóru fram án þátttöku ESB, Kanada og Litáen. Þrír bandarískir þátttakendur voru í þeim, tveir fræðimenn og einn fyrrverandi leyniþjónustumaður. „Fyrir mér er þetta mjög skrýtin viðbrögð utanríkisráðuneytisins við ráðstefnu fræðimanna sem nota tjáningarfrelsi sitt samkvæmt fyrsta viðaukanum [við stjórnarskrá Bandaríkjanna] til þess að ræða um hvernig á að koma í veg fyrir að lygar og falsanir grafi undan lýðræðinu og skaði fjölskyldur og börnin okkar,“ segir Adam Fivenson, bandarískur fræðimaður sem átti sæti í pallborðsumræðunum umdeildu. Talsmenn utanríkisþjónustu Evrópusambandsins og Litáen segja að þau hafi hætt við þátttöku þar sem að hluti af dagskránni hefði ekki verið í samræmi við opinbera stefnu þeirra sem þeir tilgreindu þó ekki frekar. Bandaríska utanríkisráðuneytið sagðist Politico að það ætlaði ekki að tjá sig um samskipti við erlend ríki. Það skildi þó vel að einhverjir hefðu hætt við þátttöku í ráðstefnunni þegar þeir komust að því að þar væri Bandaríkjunum lýst sem upplýsingafalsógn. Bandaríkjastjórn hefur gengið hart fram gegn fræðimönnum og aðgerðasinnum sem rannsaka og berjast gegn upplýsingafalsi frá því að Donald Trump og repúblikanar tóku aftur við völdum fyrir að nálgast tveimur árum. Þannig lagði Bandaríkjastjórn refsiaðgerðir á evrópska embættismenn sem tóku þátt í að smíða regluverk um stafræna þjónustu og þýska og breska starfsmenn félagasamtaka sem beittu sér gegn hatursorðræðu. Bandaríkjastjórn telur hvoru tveggja vega að hagsmunum bandarískra fyrirtækja. Einnig stóð til að ræða hvernig fræðasamfélagið sem rannsakar upplýsingaóreiðu hefur brugðist við þessum þrýstingi Bandaríkjastjórnar á ráðstefnunni í Vilníus í vikunni. Ekki hættu allir við þátttöku sem bandarísku sendiráðin höfðu samband við. Þannig voru embættismenn frá Noregi, Póllandi og Rúmeníu á ráðstefnunni.
Bandaríkin Evrópusambandið Kanada Litáen Tjáningarfrelsi Samfélagsmiðlar Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira