Enski boltinn

„Hvernig dirfast þeir að skemma eitt­hvað sem er hluti af DNA þessa lands“

Andri Broddason skrifar
Khaldoon Al Mubarak, stjórnarmaður Manchester City, með Pep Guardiola, þáverandi knattspyrnustjóra Manchester City eftir að félagið hafði tryggt sér Englandsmeistaratitilinn í fótbolta árið 2024.
Khaldoon Al Mubarak, stjórnarmaður Manchester City, með Pep Guardiola, þáverandi knattspyrnustjóra Manchester City eftir að félagið hafði tryggt sér Englandsmeistaratitilinn í fótbolta árið 2024. Vísir/Getty

Ian Holloway segir að Manchester City sé að skemma enskan fótbolta með svindli sínu. Hann var þjálfari Blackpool á tímabilinu 2010-11 þar sem liðið féll með einu stigi úr ensku úrvalsdeildinni.

Á því tímabili tapaði Blackpool tvisvar fyrir Manchester City og hefur gerst sekt um að brjóta fjárhagsreglur á því tímabili. Holloway er því brjálaður yfir því að hafa fallið vegna þess að annað lið fékk að svindla.

„[Blackpool] tapaði því við vorum ekki nógu góðir vegna þess að annað lið fékk að svindla. Ef ég fengi að ráða myndi ég taka allt af þeim og láta félagið byrja aftur frá grunni. Þetta er skammarlegt og félagið er ekki enn búið að taka ábyrgð á þessu,“ sagði Holloway sem er greinilega enn súr yfir því að hafa fallið úr deildinni.

Ian Holloway þjálfaði Blackpool á tímabilinu 2010-11 þegar liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni. Hann þjálfar nú Swindon Town í ensku D-deildinni.Shaun Botterill/Getty Images

„Ég held að Pep [Guardiola] hafi ekki vitað af þessu á meðan þetta var að gerast en það er fólkið í stjórninni sem er að reyna að svindla. Það á að henda þeim út. Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands.“

Holloway endaði svarið á að segja hvað honum finnst fótbolti skipta miklu máli í Englandi. Það er jafnréttisgrundvöllur þar sem maður getur lagt sig allan fram: „Þetta snýst allt um lið og að trúa að þú getir verið aðeins betri en einhver annar. En þeir ákváðu að eyðileggja það á hæsta stigi leiksins.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×