Lífið

Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Sveppi sagði söguna í hlaðvarpinu Beint í bílinn sem hann stýrir ásamt Pétri Jóhanni Sigfússyni.
Sveppi sagði söguna í hlaðvarpinu Beint í bílinn sem hann stýrir ásamt Pétri Jóhanni Sigfússyni. Vilhelm

Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, fékk nýverið símtal sem engan foreldra langar að fá. Það var lögreglan sem hringdi sem hafði haft afskipti af syni hans. Sá hafði tapað í fjárhættuspili og refsingin varð fréttamatur alla helstu fjölmiðla landsins.

Sveppi sagði söguna í nýjasta þætti hlaðvarpsins Beint í bílinn. Hann hafi fyrst haldið að um grín væri að ræða þegar lögreglumaður kynnti sig í símann. Svo hafi ekki reynst vera.

Lögreglan sagði honum þá að hún hefði son hans og þrjá vini uppi á lögreglustöð. Fyrir það að tapa í fjárhættuspili var sonur Sveppa bundin með teipi á höndum, fótum og fyrir munn, hann skilinn eftir fyrir utan heimili og dyrabjöllunni hringt.

Heimilisfólk kom svo til dyra en þá höfðu vinirnir látið sig hverfa og eftir lá sonur Sveppa bundinn við dyrnar.

@beintibilinn

Tiktok dyraat 📞🚓 Beint í bílinn · 368. þáttur Allir þættir á beintibilinn.is #beintíbílinn #sveppi #péturjóhann #íslenskt #grín #storytime

♬ original sound - Beint í bílinn

Fjallað var raunar um þetta uppátæki í upphafi mánaðar og annað þar sem unglingsdrengur var skilinn bundinn eftir í kjallara einbýlishúss. Í báðum tilfellum kom lögregla á vettvang og leysti drengina.

Sveppi, sem kom og sótti skömmustulega drengina, telur að þetta sé sprottið af Tiktok eða svipuðum miðlum en í athugasemdum er víða bent á að börnin læri það sem fyrir þeim er haft.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.