Innlent

Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum

Birgir Olgeirsson skrifar
Ingvar Þóroddsson vill auka aðgengi að verkjalyfjum og öðrum lausasölulyfjum.
Ingvar Þóroddsson vill auka aðgengi að verkjalyfjum og öðrum lausasölulyfjum. Vísir/Einar/Anton Brink

Verkjalyf og önnur lausasölulyf gætu orðið fáanleg í matvöruverslunum og á bensínstöðvum, verði frumvarp þingmanna Viðreisnar að lögum. Fyrsti flutningsmaður segir markmiðið að bæta aðgengi að lyfjunum og auka samkeppni. Hann vonast til að breytingin skili sér í lægra verði.

Nú fást lausasölulyf að jafnaði í apótekum. Lyfjastofnun getur þó leyft verslunum að selja ákveðin lyf ef meira en tuttugu kílómetrar eru í næsta apótek.

Verði frumvarpið að lögum mætti selja öll lausasölulyf í almennum verslunum, óháð fjarlægð frá apóteki. Lyfin yrðu afgreidd af starfsfólki. Viðskiptavinir mættu aðeins taka þau sjálfir úr hillum ef Lyfjastofnun veitti sérstakt leyfi til þess.

Bindur vonir við lækkun verðs

Ráðherra gæti sett reglur um til dæmis styrkleika og geymslu lyfja og hversu mikið hver viðskiptavinur mætti kaupa.

Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar, var spurður hvort þetta gæti lækkað lyfjaverð.

„Auðvitað getur maður ekkert sagt nákvæmlega til um það en maður getur bundið vonir við það að með þessum hætti myndi aukast samkeppni ef fleiri aðilar eru að selja þessi lyf. Maður getur þá bundið vonir við að það myndi leiða til verðlækkana,“ sagði Ingvar í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Tekur Norðmenn sem dæmi

Í greinargerð frumvarpsins er fjallað um hættu á fleiri parasetamóleitrunum þegar aðgengi að lyfinu eykst. Ingvar segir að reglur ráðherra og Lyfjastofnunar eigi að draga úr þeirri áhættu.

Hann hefur ekki rætt við heilbrigðisráðherra eða aðra stjórnarflokka um stuðning við frumvarpið.

Ingvar bendir á að apótek á Akureyri, þar sem hann býr, séu flest lokuð á kvöldin. Sjálfur fótbrotnaði hann í skíðaferð í Noregi fyrr á árinu og komst af sjúkrahúsinu nærri miðnætti.

„Lillehammer er nú ekki stór bær og þar var ekkert apótek opið en ég komst í Paratabs og Íbúfen á bensínstöð. Ef Norðmenn geta haft þetta svona held ég að við ættum að geta gert það líka,“ bætir Ingvar við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×