Innlent

Dæmdur fyrir skatt­svik vegna B

Kjartan Kjartansson skrifar
Sverrir Einar Eiríksson tók við rekstri skemmtistaðar í Bankastræti sem gekk lengi undir nafninu B5. Lögbann var sett á að hann notaði það nafn og staðurinn meðal annars B og Bankastræti Club.
Sverrir Einar Eiríksson tók við rekstri skemmtistaðar í Bankastræti sem gekk lengi undir nafninu B5. Lögbann var sett á að hann notaði það nafn og staðurinn meðal annars B og Bankastræti Club. Aðsend

Skemmtistaða- og áfengisverslunareigandi var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir meiriháttar skattalagabrot, meðal annars í rekstri skemmtistaðarins B í Bankastræti. Hann þarf að afplána þrjá mánuði af fangelsisrefsingunni og greiða meira en hundrað milljónir í sekt.

Sverrir Einar Eiríksson var ákærður fyrir standa ekki skil á tæpum sextíu milljónum króna í opinber gjöld í tengslum við rekstur fjögurra einkahlutafélaga, þar á meðal B Reykjavík ehf. sem hélt utan um rekstur á skemmtistað í Bankastræti.

Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi Sverri Einar á föstudag. Hann var dæmdur í 24 mánaða fangelsi en 21 mánuður var skilorðsbundinn til þriggja ára. Sverri Einari var jafnframt gert að greiða tæpar 105 milljónir króna í sekt eða sæta fangelsi í 360 daga ella.

Kröfu héraðssaksóknara um að Sverri Einari yrði bannað að stofna félag með takmarkaðri ábyrgð, sitja í stjórn, starfa sem framkvæmdastjóri eða koma með öðrum hætti að stjórnun eða fara með meirihluta atkvæðisréttar í félagi í þrjú ár var aftur á móti hafnað.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sverrir Einar hlýtur dóm fyrir skattsvik. Hann hlaut tíu mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir að skila ekki opinberum gjöldum af rekstri þriggja einkahlutafélaga árið 2022. Þau brot tengdust meðal annars rekstri hans á veitingastaðnum Þrastalundi í Grímsnesi.

Sverrir Einar hefur meðal annars rekið Nýju vínbúðina, netverslun með áfengi. Þá hefur hann komið nálægt viðskiptum með gull, rekið starfsmannaleigu og veitinga- og gistihús.


Tengdar fréttir

Sverrir Einar ákærður en fer í hart á móti

Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson hefur verið ákærður fyrir meiri háttar skattalagabrot með því að hafa, sem stjórnandi fjögurra félaga, ekki staðið skil á alls 59,7 milljónum króna í opinber gjöld. Þess er krafist að hann verði dæmdur til refsingar og í atvinnurekstrarbann. Hann hefur kært Ríkisskattstjóra og Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu vegna aðgerða á starfstöðvum félaga hans í apríl í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×