Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Örninn 14. október 2026 12:10 Hjá Erninum hjólreiðaverslun er úrvalið fjölbreytt og nú geta viðskiptavinir einnig forpantað rafhjól úr 2027-línunni á sérstaklega hagstæðum kjörum. Jón Þór Skaftason er rekstrarstjóri hjá Erninum hjólreiðaverslun. Rafhjól njóta sífellt meiri vinsælda enda sameina þau hreyfingu, útiveru, sparnað og þægilegan ferðamáta. Hvort sem ætlunin er að hjóla í vinnuna, skjótast í búðina, fara í fjallaferðir eða skutla börnunum í leikskólann er hægt að finna rafhjól við hæfi. Hjá Erninum hjólreiðaverslun er úrvalið fjölbreytt og nú geta viðskiptavinir einnig forpantað rafhjól úr 2027-línunni á sérstaklega hagstæðum kjörum. „
Með forpöntun gefst fólki tækifæri til að tryggja sér nýtt rafhjól á betra verði. Við náum fram hagstæðari kjörum með því að panta hjólin fyrirfram frá framleiðendum og látum þann ávinning skila sér til viðskiptavina okkar,“ segir Jón Þór Skaftason, rekstrarstjóri hjá Erninum hjólreiðaverslun. Rafhjól fyrir alla fjölskylduna Hjá Erninum fást rafhjól frá þekktum framleiðendum á borð við TREK, Giant og STOER. Úrvalið spannar allt frá þægilegum götuhjólum og blendingum til daglegra nota til öflugra fjallahjóla og fjölskylduhjóla. „Það er ótrúlega mikil fjölbreytni í rafhjólum í dag og þau henta mjög ólíkum þörfum. Við erum til dæmis sérstaklega spennt fyrir fjölskylduhjólunum, sem einnig eru kölluð nytjahjól. Þau hafa slegið í gegn víða í Evrópu og við finnum fyrir vaxandi áhuga á þeim hér heima,“ segir Jón Þór. Á slíkum hjólum er hægt að skutla börnunum í leikskólann, fara í innkaupaferðir og sinna ýmsum daglegum erindum án þess að þurfa að ræsa bílinn. Jón Þór telur að þessi flokkur rafhjóla eigi eftir að vaxa verulega á næstu árum. „Það er líka áhugavert að nú er hægt að sækja um allt að 200 þúsund króna styrk hjá Orkusjóði vegna kaupa á þessari tegund hjóla.“ Ósveittur í vinnuna og meiri hreyfing á heimleiðinni Einn helsti kostur rafhjóla er að hjólreiðamaðurinn getur sjálfur stjórnað því hversu mikla aðstoð hann fær frá mótornum. Það opnar ýmsa möguleika, ekki síst fyrir fólk sem vill nýta hjólið sem daglegan ferðamáta. „Þú getur til dæmis hjólað í vinnuna með meiri aðstoð frá mótornum og mætt ferskur og ósveittur. Svo geturðu minnkað aðstoðina á heimleiðinni og tekið meira á því ef þú ert í stuði. Þetta er einn helsti kosturinn við rafhjól,“ segir Jón Þór. Hann bendir á að rafhjól geri fólki jafnframt kleift að fara lengri vegalengdir og hjóla oftar en ella. „Þótt mótorinn hjálpi til ertu enn að hreyfa þig, njóta útiverunnar og fá ferskt loft. Fyrir marga getur rafhjólið alveg komið í stað bílsins stóran hluta ársins.“ Sjálfskipting og nagladekk fyrir veturinn Tækninni fleygir stöðugt fram og ein af spennandi nýjungunum hjá Erninum í vetur eru rafhjól með sjálfskiptingu. „Við erum nú í fyrsta sinn að bjóða rafhjól frá framleiðendum okkar með sjálfskiptingu. Þá þarf fólk ekki að hugsa um að skipta um gír heldur sér hjólið um það sjálft. Þetta eykur þægindin og getur líka dregið úr sliti á gírbúnaðinum,“ útskýrir Jón Þór. Og þótt veturinn sé genginn í garð þarf ekki endilega að leggja hjólinu. „Það er hægt að setja nagladekk undir flest rafhjólin okkar. Þau veita betra grip í hálku og með réttum búnaði er vel hægt að hjóla áfram yfir vetrarmánuðina.“ Persónuleg ráðgjöf og öflugt verkstæði Jón Þór segir mikilvægt að fólk velji rafhjól sem hentar þörfum þess. Hjá Erninum eru fjölmargar gerðir til sýnis og hægt er að prófa hjólin áður en ákvörðun er tekin. „Við erum nýbyrjuð að bjóða upp á rafhjólaráðgjöf sem hægt er að bóka fyrirfram. Þar getur fólk sest niður með sérfræðingi og farið vel yfir möguleikana. Úrvalið er orðið svo mikið að það getur verið gott að fá aðstoð við valið.“ Þjónustunni lýkur heldur ekki þegar hjólið er komið í hendur kaupandans. Örninn hefur byggt upp öflugt hjólaverkstæði þar sem reynslumikið starfsfólk sinnir bæði almennu viðhaldi og sérhæfðum viðgerðum, meðal annars á mótorum rafhjóla. „Við viljum að fólk fái góða þjónustu frá fyrsta degi og til lengri tíma. Það er alltaf velkomið að kíkja við, skoða úrvalið, prófa hjólin og spjalla við okkur. Við hjálpum fólki að finna rétta hjólið,“ segir Jón Þór Skaftason að lokum.
Hjólreiðar Heilsa Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Fleiri fréttir Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Sjá meira