Körfubolti

Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tíma­bilsins

Andri Broddason skrifar
Steph Curry er orðinn 38 ára og hefur spilað allan sinn feril hjá Golden State Warriors.
Steph Curry er orðinn 38 ára og hefur spilað allan sinn feril hjá Golden State Warriors. Sam Hodde/Getty Images

Steph Curry, leikmaður Golden State Warriors, sást haltra af velli á æfingu sem var opin fyrir almenning. Þetta er óheppileg tímasetning þar sem fyrsti leikur tímabilsins fyrir liðið er í vikunni.

Körfuboltaáhugamenn fagna því að NBA-deildin hefur göngu sína í vikunni en staðan virtist ekki vera góð fyrir Warriors þar sem ein stærsta stjarna þeirra fór af velli. Curry, sem er orðinn 38 ára, var mikið meiddur á síðasta tímabili og voru stuðningsmenn hræddir um að það sama myndi gerast aftur.

Steve Kerr, þjálfari Golden State Warriors, sagði þó að það væri í lagi með Curry og að hann hefði aðeins runnið og fundið aðeins til í ökklanum. Stuðningsmenn þurfa því ekki að vera hræddir um að hnémeiðslin hans frá því í fyrra séu að halda áfram að angra Curry.

Steph Curry framlengdi nýverið samningi sínum við Warriors núna í september og gildir hann næstu tvö árin. Þrátt fyrir það hefur Kerr tekið fram að hann og aðrir eldri leikmenn sem hafa verið í liðinu lengi munu ekki spila alla leiki fyrir Warriors. Hann ætlar að passa leikjaálagið hjá eldri leikmönnum til að geta haldið þeim heilum þegar liðið þarf á reynslunni þeirra að halda.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×