Enski boltinn

Ýmis­legt fyrir stuðnings­menn Tottenham til að fagna

Andri Broddason skrifar
James Maddison átti frábæran leik í fyrsta skipti sem hann er í byrjunarliðinu í 18 mánuði.
James Maddison átti frábæran leik í fyrsta skipti sem hann er í byrjunarliðinu í 18 mánuði. Alex Pantling/Getty Images

Eftir erfiða byrjun á tímabilinu náði Tottenham að sækja fyrsta sigur tímabilsins í gær með 3-1 sigri á nýliðum Coventry. Það var þó meira sem Tottenham gat fagnað þar sem James Maddison snéri aftur í byrjunarliðið í 18 mánuði og Dejan Kulusevski kom inn á eftir að hafa verið meiddur í yfir 500 daga.

Þrátt fyrir að Maddison hafi ekki byrjað leik lengi þá náði hann að sýna hvers virði hann er fyrir Tottenham þar sem hann skoraði fyrsta mark leiksins. Ekki hefur verið mikið af góðu gengi hjá félaginu síðustu tímabil og hafa margir lykilleikmenn dottið í meiðsli. Það er því gríðarlegur léttir fyrir liðið að stór nöfn séu að snúa aftur.

Leikurinn í gær er í fyrsta skipti sem Tottenham skorar þrjú mörk eða meira á heimavelli síðan í fyrsta leik síðasta tímabils. Það var fyrsti leikur Tottenham undir stjórn Thomas Frank og unnu heimamenn þar Burnley 3-0.

Maddison var tekinn af velli þegar um 20 mínútur voru eftir af leiknum og uppskar hann mikil fagnaðarlæti hjá stuðningsmönnum Tottenham. Stuðningsmenn voru fegnir að fá hann aftur í byrjunarliðið og Maddison sýndi það vel í leiknum með góðri frammistöðu.

Mestu fagnaðarlæti leiksins komu þó þegar Kulusevski fór loksins aftur inn á völlinn eftir 526 daga fjarveru. Hann kom inn á þegar aðeins þrjár mínútur voru eftir en ýmislegt hefur gerst síðan Kulusevski spilaði síðast leik fyrir Tottenham. Sem dæmi hafa þrír þjálfarar félagsins verið reknir síðan hann spilaði síðast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×