Íslenski boltinn

Fram­lengir í Vestur­bænum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Stefán Árni fagnar marki gegn Val á Hlíðarenda fyrr í sumar.
Stefán Árni fagnar marki gegn Val á Hlíðarenda fyrr í sumar. Vísir/Diego

Stefán Árni Geirsson hefur skrifað undir nýjan samning við KR til haustsins 2028. Fyrri samningur var við það að renna út.

Stefán Árni var með samning út yfirstandandi leiktíð sem klárast næstu helgi er lokaumferð Bestu deildar karla fer fram. Óvissa ríkti um framtíð Stefáns Árna sem hefur verið inn og út úr liði KR-inga og heldur meira út úr því að undanförnu.

Fótbolti.net greinir frá því að hann hafi skrifað undir nýjan samning við liðið sem er fram á haustmánuði 2028 og verður hann því næstu tvær leiktíðirnar í Vesturbænum.

Stefán Árni er 26 ára og uppalinn hjá KR en hefur einnig leikið með Leikni hér á landi. Meiðsli hafa strítt honum undanfarin ár og missti hann meðal annars af nánast allri leiktíðinni 2025.

Stefán Árni hefur tekið þátt í 18 deildarleikjum í sumar og skorað þrjú mörk fyrir KR-inga.

KR mætir Breiðabliki í Vesturbæ í lokaumferð Bestu deildarinnar á laugardaginn kemur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×