Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir og Óttar Guðmundsson skrifa 21. október 2026 06:02 Það var eitt vandamál sem hafði lengi farið í taugarnar á forstjóra fyrirtækis. Hann vissi að hægt væri að leysa það með tiltölulega einföldum hætti, en verkefnið hafði aldrei komist nógu ofarlega á forgangslista fyrirtækisins. Viðskiptavinir voru með þjónustusamninga við fyrirtækið sem kváðu á um ákveðinn fjölda vinnustunda í hverjum mánuði. Hins vegar var ekki til staðar innan fyrirtækisins verklag til að fylgjast með þeim vinnutímum sem starfsfólkið innti af hendi og fyrir vikið fór oft meiri tími í verkefnin en samningar gerðu ráð fyrir, án þess að sú vinna væri rukkuð sérstaklega. Fyrirtækið var í raun að borga með þessum samningum. Forstjórinn er ekki forritari en þekkir reksturinn, kerfin sín og gögnin sem fyrirtækið vinnur með. Hann ákvað að nýta gervigreind til að þróa lausnina sjálfur til að takast á við þetta vandamál. Forritið sem hann þróaði fletti upp stöðunni hjá viðskiptavinum fyrirtækisins alla morgna og sendi yfirlit til starfsfólksins sem málið varðaði. Starfsfólkið fékk betri yfirsýn með aðgengi að mælaborðum og gat komið í veg fyrir að vinna of marga tíma fyrir tiltekna kúnna. Forritið var einfalt og virkaði vel, hinsvegar var á því einn galli. Eitt af því sem honum yfirsást var að í þessu ferli þá voru upplýsingar um viðskiptavini fyrirtækisins nú allt í einu orðnar aðgengilegar hverjum sem er á Internetinu. Betra að flýta sér hægt Það sem gerir gervigreindina svo spennandi er að fólk, líkt og forstjórinn, sem þekkir vandamálin og helstu áskoranir í rekstri fyrirtækja best, getur nú prófað hugmyndir sínar og smíðað fyrstu útgáfur af lausnum án aðkomu sérfræðinga. Forritun sem tók áður margar vikur eða jafnvel mánuði er nú hægt að koma í frumgerð á örfáum dögum. Þetta skapar mikla möguleika þar sem hægt er að sjá og prófa hvað virkar áður en fullbúin lausn er útbúin. Það þarf þó að hafa varann á því að gervigreindin er yfirleitt sammála um að hugmynd notandans sé góð og skrifar iðulega það sem beðið er um. Hún einblínir á vandamálið sem er fyrir hendi en biður ekki endilega um allar hliðar hugmyndarinnar eða kallar eftir heildarmynd lausnarinnar, líkt og hvar gögnin eiga að liggja, hver má komast í þau, hvað gerist þegar eitthvað bilar og hver á að fylgjast með þessu þegar lausnin er komin í daglegan rekstur. Þetta eru spurningar sem sérfræðingar hafa vanið sig á að spyrja áður en lengra er haldið. Rekstur og áframhaldandi þróun eru hluti af því sem þarf að hugsa um ef lausnin á að virka til lengri tíma litið. Ný lausn sem virkar vel í byrjun getur orðið dýr í rekstri ef viðhald og þróun voru ekki hugsuð frá upphafi. Ef forritarar hverfa úr verkefninu hverfur mikilvæg þekking og rýni og réttu spurningarnar eru ekki spurðar. Það er frábært að starfsfólk geti stuðst við gervigreindina til að koma hugmyndum sínum í mótun, en í því felst líka sú áhætta að starfsfólk sé farið að nota alls konar lausnir sem enginn í tæknideildinni veit að eru í umferð. Samhliða þessu þarf því að tryggja að lausnir sem eru komnar í daglegan rekstur fái ábyrgðaraðila og þá umgjörð sem þarf til að hægt sé að treysta á þær til lengri tíma. Nokkrar spurningar sem vert er að spyrja Áður en lausn sem hefur verið smíðuð innanhúss verður hluti af daglegum rekstri er mikilvægt að huga að eftirfarandi atriðum: Hvar eru gögnin vistuð? Er mögulegt að einhver óviðkomandi geti komist í þau? Eru lykilorð eða aðgangslyklar geymd í kóðanum sjálfum eða þar sem hann er vistaður? Hver hefur aðgang að kóðanum og hver væri skaðinn ef slíkar upplýsingar yrðu opinberar? Er rekjanleiki í kerfinu? Er hægt að sjá hver fletti upp hverju og hvenær? Þarf þess? Hvað gerist þegar lausnin bilar? Fréttir einhver af því eða liggur hún niðri þar til það spyrst út? Hver tekur ákvarðanir út frá lausninni? Hversu alvarlegt væri ef upplýsingarnar væru rangar? Eru persónuupplýsingar hluti af lausninni og stenst meðferð þeirra persónuverndarlög? Ef sá sem smíðaði lausnina hættir á morgun, getur þá einhver annar haldið henni við? Ef svörin við þessum spurningum eru óljós er lausnin ekki tilbúin að verða hluti af daglegum rekstri. Það þýðir ekki að hætta eigi við verkefnið, heldur þarf að tryggja að lausnin sé örugg. Höldum áfram að smíða Það væri synd ef niðurstaðan af þessari þróun yrði sú að allar hugmyndir þyrftu áfram að fara fyrst í gegnum tæknideildina og bíða á verkefnalista eftir hentugum tíma. Það felast mikil tækifæri fyrir nýsköpun innan fyrirtækja í því að leyfa starfsfólki að prófa sig áfram með því að nota nýja tækni, en síðan sé fengið fagfólk til að rýna í verkið þegar frumgerðin er farin að taka á sig mynd. Til þess þarf að innleiða verkferla þar sem hægt er að prófa hugmyndir án þess að eiga á hættu að gögnin leki út á netið. Það þarf hvorki að vera flókið né dýrt miðað við það sem er í húfi og það má alls ekki slökkva á sköpunargáfunni hjá fólkinu sem er lausnamiðað. Hvað varð svo um forstjórann? Jú, hann er enn að smíða innan öruggs umhverfis. Framtíðin snýst um að fólk geti sjálft smíðað lausnir að því gefnu að traustar tæknilegar undirstöður séu til staðar. Höfundar eru rekstrarstjóri og gagnaverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gervigreind Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun