Innlent

Vill bæta eftir­lit með lyfjagjöfum aldraðra

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsóknarflokksins hóf umræðuna um lyfjagjöf á hjúkrunarheimilum og umönnun aldraðra. Alma Möller ætlar m.a. að auka eftirlit með lyfjagjöf samkvæmt svari hennar.
Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsóknarflokksins hóf umræðuna um lyfjagjöf á hjúkrunarheimilum og umönnun aldraðra. Alma Möller ætlar m.a. að auka eftirlit með lyfjagjöf samkvæmt svari hennar. Vísir

Geðrofslyfið quetiapín er algengasta geðrofslyfið meðal íbúa hjúkrunarheimila hér á landi. Rúmlega þriðjungur íbúanna fékk geðrofslyf í fyrra. Heilbrigðisráðherra telur nauðsynlegt að bæta eftirlit með lyfjagjöfum eldra fólks. Heilbrigðisráðherra segir unnið að því að bæta eftirlit með lyfjagjöfum á hjúkrunarheimilum. Fara eigi reglulega yfir lyfjanotkun íbúa hjúkrunarheimila og bæta skráningu á því hvaða lyf þeir fá og hvers vegna.

Málið var tekið upp á Alþingi í dag í kjölfar umfjöllunar fréttaskýringaþáttanna Kompáss um umfang svefnlyfjanotkunar og Kveiks um lyfjanotkun aldraðra á hjúkrunarheimilum.  

Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsóknarflokksins hóf umræðuna á Alþingi í dag undir liðnum, lyfjagjöf á hjúkrunarheimilum og umönnun aldraðra. Halla Hrund vísaði til nýlegrar umfjöllunar Kveiks um notkun geðlyfja á íslenskum hjúkrunarheimilum. Þá benti hún sérstaklega á að í fréttaskýringaþættinum Kompási hefði sömuleiðis verið fjallað ítarlega um umfang svefnlyfjanotkunar hér á landi.

Halla sagði í ræðu sinni fjölmarga hafa haft samband við sig vegna lyfjagjafa á hjúkrunarheimilum og að hún vissi til þess að einhver mál hefðu ratað á borð Embættis landlæknis. Hún kallaði m.a. eftir upplýsingum um umfang og þróun geðlyfjanotkunar, mun á milli hjúkrunarheimila og hvernig Ísland stæði í samanburði við önnur ríki.

Quetapín algengast

Samkvæmt upplýsingum frá Embætti landlæknis fengu 37 prósent íbúa hjúkrunarheimila geðrofslyf árið 2025. Geðrofslyfið quetiapín er algengasta geðrofslyfið meðal íbúa hjúkrunarheimila hér á landi. Þetta kom fram í svari Ölmu Möller heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Höllu Hrundar. 

Alma sagði enn fremur að hlutfallið eitt og sér gæfi ekki nægar upplýsingar til að meta hvort lyfjameðferðin væri viðeigandi. Til þess þyrfti að vita við hverju lyfin hefðu verið gefin, í hvaða skömmtum og hversu lengi. Ráðherra sagði að geðrofslyf væru oft notuð í litlum skömmtum, meðal annars við rugli, kvíða, svefnleysi og ógleði. 

„Það er mitt mat að við getum og eigum að bæta eftirfylgni með lyfjameðferð eldra fólks, ekki einungis inni á hjúkrunarheimilum heldur almennt í allri heilbrigðisþjónustu,“ sagði Alma í svari sínu.

Notkun quetiapíns nær tvöfaldast á tíu árum

Vísir hefur undanfarna daga fjallað ítarlega um stóraukna notkun geðrofslyfsins quetiapíns hér á landi.

Samkvæmt upplýsingum frá Embætti landlæknis fengu um 11.400 einstaklingar lyfinu ávísað árið 2025, nær tvöfalt fleiri en tíu árum áður. Notkunin er sérstaklega útbreidd meðal eldra fólks. Rúmlega sex prósent fólks áttatíu ára og eldra fengu quetiapíni ávísað í fyrra, sem er hæsta hlutfallið meðal aldurshópa.

Quetiapín er meðal annars notað við geðklofa og geðhvarfasýki en hefur einnig slævandi áhrif. Lyfið er því stundum notað í litlum skömmtum við svefnleysi, þótt sú notkun sé utan samþykktra ábendinga.

Sérfræðingar sem Vísir hefur rætt við hafa lýst áhyggjum af því að quetiapín sé í auknum mæli notað við svefnvanda í stað hefðbundinna svefnlyfja.

Þeir hafa bent á að jafnvel í litlum skömmtum geti lyfið valdið aukaverkunum á borð við slævingu, svima og blóðþrýstingsfall, sem geti aukið byltuhættu meðal aldraðra.

Í fréttaskýringaþættinum Kompási var nýlega fjallað um umfang svefnlyfjanotkunar hér á landi og áhættuna sem getur fylgt langvarandi notkun, sérstaklega meðal eldra fólks. Þar kom meðal annars fram að Ísland er meðal þeirra ríkja þar sem notkun hefðbundinna svefnlyfja er hvað mest. Einnig var fjallað um hvernig lyf sem almennt eru ætluð til skammtímanotkunar geta orðið að margra ára meðferð.

Tvær kvartanir á fimm árum

Alma sagði á Alþingi í dag að tilkynnt atvik og kvartanir til Embættis landlæknis gæfu ekki vísbendingar um að umfang vandans væri mikið á hjúkrunarheimilum. Á síðustu fimm árum hefðu aðeins tvær kvartanir borist vegna slíkra lyfjagjafa og ekkert alvarlegt atvik verið tilkynnt.

Hún lagði þó áherslu á að bæta þyrfti eftirfylgni með lyfjameðferð eldra fólks. Samkvæmt leiðbeiningum ætti að leita orsaka vanlíðunar og reyna önnur úrræði áður en geðrofslyfjum væri beitt. Ráðherra benti jafnframt á mikilvægt hlutverk aðstandenda, sem þekktu oft best venjur og viðbrögð ástvina sinna.

Vill bæta skráningu og eftirlit

Alma sagði unnið að innleiðingu reglulegra yfirferða á lyfjum fyrir íbúa hjúkrunarheimila og sérstaks gæðavísis um framkvæmd þeirra. Þá væri í frumvarpi til breytinga á lyfjalögum gert ráð fyrir að lyfjafyrirmæli á hjúkrunarheimilum yrðu skráð í lyfjagagnagrunn Embættis landlæknis. Með því fengjust meðal annars betri upplýsingar um skammtímameðferð, lyf sem gefin eru eftir þörfum og við hverju lyfin eru gefin.

„„Verði það frumvarp að lögum mun þetta auðvelda Embætti landlæknis eftirlit með lyfjameðferð heimilisfólks á hjúkrunarheimilum,“ sagði Alma á Alþingi í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×