Innlent

Ómar lagði úr­skurðar­nefnd vegna tölvupóstsins ó­venju­lega

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Ómar Valdimarsson og Alexander Máni í bakgrunni.
Ómar Valdimarsson og Alexander Máni í bakgrunni. Vísir/Vilhelm

Landsréttur hefur snúið við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur og fallist á kröfu Ómars Valdimarssonar lögmanns um að úrskurður um að hann skyldi áminntur verði felldur úr gildi.

Ómar Valdimarsson hefur eldað grátt silfur við úrskurðarnefnd lögmanna um tíma og ítrekað verið áminntur af henni.

Ómar sendi dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur, dómstjóra sama dómstóls og 26 öðrum lögmönnum tölvupóst þar sem hann kvartaði undan lágri málsvarnarþóknun og sagðist þurfa að segja starfsmanni upp hennar vegna.

Úrskurðarnefnd lögmanna barst kvörtun og hún áminnti Ómar fyrir. Málið snýr að málsmeðferð Bankastræti club-málsins svokallaða. Í því var Ómar verjandi Alexanders Mána Björnssonar sem var dæmdur í sex ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps.

„Hýrudráttur í S-1075/2023“

Málið var umfangsmikið, réttarhöld fóru fram í veislusal yfir heila viku og verjendur voru 25 talsins, jafnmargir og sakborningar. Í dómsorði dóms Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp af Sigríði Hjaltested héraðsdómara, segir að Alexander Máni skuli greiða Ómari tvo þriðju hluta málsvarnarlauna hans, 7,8 milljónir króna. 

Samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar vildi Ómar ekki una þessari niðurstöðu Sigríðar og sendi henni bréf. Í því segir að hann hafi fengið greidd 43,7 prósent þeirra málvarnarlauna sem hann krafðist samkvæmt framlagðri tímaskýrslu.

Hann spurði hana hvort ólaunaði hlutinn væri „þegnskylduvinna“ og bað dómara um að benda á hvaða starfsmann hann ætti að reka. Næsta dag sendi hann tölvupóst á 26 lögmenn með yfirskriftinni „Hýrudráttur í S-1075/2023“ og kannaði áhuga á að lýsa því yfir að þeir myndu ekki flytja sakamál hjá viðkomandi dómara framvegis. Þessar vangaveltur fengu takmarkaðar undirtektir.

Héraðsdómur ekki haft beina aðild

Ómar höfðaði mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til að fá þessum úrskurði hnekkt en þar var fallist á að Ómar hefði átt skilið áminningu vegna háttsemi hans og hafnaði kröfu hans um ógildingu úrskurðarins. Allir dómarar við dóminn viku sæti sínu og dómari við Héraðsdóm Reykjaness endaði á því að dæma í málinu.

Ómar áfrýjaði dómnum til Landsréttar sem komst að þeirri niðurstöðu að Héraðsdómur Reykjavíkur hefði ekki haft aðild að málinu fyrir úrskurðarnefnd lögmanna. Háttsemi áfrýjanda hafi fyrst og fremst varðar tvo tiltekna dómara, ekki dómstólinn sem stofnun.

Þar sem kvartandi hefði ekki haft aðild var úrskurðarnefndinni óheimilt að taka málið til efnismeðferðar.

Fallist var því á kröfu Ómars og úrskurður úrskurðarnefndar lögmanna frá 9. júlí 2024 var felldur úr gildi. Íslenska ríkinu var gert að greiða áfrýjanda 1.800.000 kr. í málskostnað fyrir héraðsdómi og Landsrétti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×