Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir og Andri Ólafsson skrifa 26. október 2026 17:30 Það þarf heilt stuðningsnet þegar þarf að koma einu barni í tannréttingartíma, eða það er að minnsta kosti raunveruleiki ungra fjölskyldna á landsbyggðinni. Svanfríður, annar höfunda, þurfti nýlega að ferðast frá Ísafirði til Reykjavíkur með barni sínu í slíkan tíma. Tíminn sjálfur var bókaður með eins og hálfs mánaðar fyrirvara en skipulag fjölskyldunnar fyrir þann tíma var enn að taka á sig mynd. Þegar nær dró var ljóst að eina lausnin til að ná tímanum var sú að annað foreldrið þyrfti að fljúga suður með eldra barninu og heim aftur sama dag. Áður en hægt var að bóka þurfti þó að tryggja að allt gengi upp heima fyrir. Vegna vinnu eiginmanns þurfti aðstoð úr stuðningsnetinu við yngra barnið svo það gæti sótt skólann þrátt fyrir að Svanfríður yrði að heiman. Þegar skipulagið var komið á sinn stað voru fimm dagar í ferðina. Flug fyrir móður og barn kostaði samtals 94.085 krónur. Eftir afslátt Loftbrúar greiddi heimilið 56.451 krónur úr eigin vasa. Fjölskyldan á góða að í Reykjavík og með aðstoð komst hún hjá því að greiða fyrir bílaleigubíl eða aðra ferðamáta. Þrátt fyrir þá hjálp var ferðin stór biti í heimilisbókhaldinu. Þetta er meðal þess sem þarf að taka í reikninginn þegar fólki er bent á að bóka fyrr og velja ódýrari ferðir. Það að vita af tíma með góðum fyrirvara þýðir ekki að allt sé tilbúið fyrir ferðina. Það geta ekki öll valið ódýrasta miðann Loftbrúnni var komið á árið 2020 til að bæta aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að miðlægri þjónustu og efla byggðir með því að gera innanlandsflug að hagkvæmari samgöngukosti. Hún átti að einfalda fólki að sækja þjónustu, afþreyingu og heimsækja ættingja og vini á höfuðborgarsvæðinu. Að baki þessarar ákvörðunar liggur viðurkenning á því að búseta fjarri höfuðborginni hafi í för með sér kostnað og aðstöðumun sem rétt sé að jafna. Frá næstu áramótum verður 40% afslætti Loftbrúar hins vegar skipt út fyrir fasta fjárhæð, 7.000 krónur, eða kannski 9.000 krónur, á fluglegg. Breytingin er vissulega hagstæð við ákveðnar aðstæður. Í fullkomnum heimi, þar sem við getum bókað flug með góðum fyrirvara, valið ódýrasta ferðadaginn og látið ódýrasta miðann nægja, gætum við til dæmis fundið flug á 15.000 krónur aðra leið. Með núverandi fyrirkomulagi greiðum við 9.000 krónur fyrir þann miða en með nýja fyrirkomulaginu yrði greiðslan 8.000 krónur. Við spörum þá 1.000 krónur á fluglegg. En daglegt líf gefur okkur ekki alltaf þetta svigrúm. Flugferð Svanfríðar og barnsins hennar, sem við lýstum í upphafi, kostaði 94.085 krónur fyrir afslátt. Með Loftbrú greiddi heimilið 56.451 krónu. Með nýja fyrirkomulaginu yrði stuðningurinn samtals 28.000 krónur og eigin greiðsla 66.085 krónur, miðað.við 7.000 krónur á fluglegg við óbreytt fargjald. Það eru 9.634 krónur til viðbótar við þá þegar háu fjárhæð sem þurfti að greiða vegna ferðar í einn tannréttingartíma. Þessar 66.085 krónur þarf að taka af sömu tekjum og eiga að duga fyrir húsnæði, mat og öðrum nauðsynjum. Ferðaþörfin hverfur einfaldlega ekki þrátt fyrir að stuðningurinn minnki en minna verður eftir til að standa undir daglegu lífi. Spurningin er því: Hverjir hafa svigrúm til að velja ódýrustu ferðirnar og hverjir þurfa að ferðast þegar fjölskylduaðstæður, nám eða þörf fyrir þjónustu krefjast þess? Bókið bara fyrr… Í kynningu stjórnvalda á breytingunni er bent á að afslátturinn geti orðið hlutfallslega meiri þegar fólk bókar snemma og tryggir sér hagstæð fargjöld. En hversu raunhæft er það fyrir ungt fólk að haga lífi sínu eftir ódýrustu flugmiðunum? Ungt launafólk í vaktavinnu þarf að bíða eftir vaktaplani og flest þurfa að bíða eftir samþykki fyrir fríi áður en hægt er að bóka ferð. Námsfólk sem þarf að ferðast vegna staðlotu eða prófs ræður ekki hvaða dag það á að mæta. Ungar fjölskyldur þurfa að samræma vinnu, skóla og umönnun. Ódýrasti ferðadagurinn er ekki endilega dagurinn sem er hægt að ferðast. Svo þarf auðvitað að eiga fyrir miðanum þegar hann er keyptur. Það hjálpar lítið að sjá hagstætt fargjald nokkrum mánuðum fram í tímann ef svigrúmið er ekki til staðar. Að bóka áður en áætlanir, leyfi frá vinnu eða aðrar nauðsynlegar staðfestingar liggja fyrir geta líka þýtt aukakostnað síðar til að breyta ferðinni, sem er alltaf í skilmálum ódýrasta fargjaldsins. Sá sem hefur minnst svigrúm í fjárhagnum hefur jafnframt minnst svigrúm til að taka slíka áhættu. Svigrúmið takmarkast líka af flugframboðinu sjálfu. Samningur ríkisins um Ísafjarðarflug tryggir að lágmarki sjö ferðir á viku yfir dimmustu vetrarmánuðina. Til og frá Bíldudal er samkvæmt vetraráætlun ein fer á dag sex daga vikunnar. Íbúi sem flýgur suður frá Vestfjörðum til að sinna erindum sínum kemst sjaldnast heim aftur með áætlanaflugi sama dag. Að velja annan ferðadag getur þá þýtt fleiri gistinætur, lengri fjarveru og flóknara skipulag heima fyrir. Ferðaáætlanir geta svo brugðist, jafnvel þegar búið er að ganga frá ferðinni. Andri, annar höfunda, þekkir vel hve áhættan getur verið mikil. Hann bókaði flug fram og til baka frá Akureyri til Reykjavíkur fjórum dögum fyrir brottför vegna erindis sem kom upp með stuttum fyrirvara og tók aðeins tvær og hálfa klukkustund. Fargjaldið var um 140.000 krónur (já, í alvöru). Daginn fyrir brottför fékk hann tilkynningu um að morgunfluginu hefði verið breytt. Í stað þess að fara klukkan 8:00 var flugið nú á áætlun klukkan 20:00, eða eftir að flugið hans heim til Akureyrar var farið. Ferðin gekk því ekki lengur upp. Til að komast á staðinn þurfti hann að útvega bílaleigubíl og aka suður og standa undir þeim kostnaði til viðbótar þar til flugið fengist endurgreitt. Þegar þetta er skrifað bíður hann enn eftir endurgreiðslu á ónotaða flugleggnum, um 70.000 krónum. Við ferðina bættust því einnig kostnaður við vinnutap og um fimm tímar undir stýri. Möguleikinn á að bóka ódýrt snýst því bæði um fyrirvara og fjárhag. Við mat á breytingunni verður að taka mið af aðstæðum þeirra sem þurfa að ferðast á ákveðnum tíma, þrátt fyrir að ódýrustu sætin séu þá ekki í boði. Það er ekki bara að taka bílinn Þegar horft er á ferðir milli þeirra landshluta sem flugþjónustan tengir saman getum við líka skoðað hvaða aðrir ferðamöguleikar standa fólki til boða. Þegar flugið verður of dýrt er auðvelt að benda á bílinn. En sá valkostur krefst þess að fólk hafi aðgang að bíl sem hentar ferðinni og geti staðið undir eldsneyti, viðhaldi og öðrum kostnaði sem hlýst við aksturinn. Ungt fólk sem á ekki bíl getur þurft að greiða fyrir bílaleigu eða reiða sig á aðstoð annarra til að komast leiðar sinnar. Svo er það tíminn, okkar dýrmætasta auðlind. Ferð milli Akureyrar og Reykjavíkur tekur um fimm klukkustundir í akstri aðra leið og frá Ísafirði um fimm og hálfa, allt eftir færð og aðstæðum. Það eru tíu til ellefu klukkustundir undir stýri fram og til baka, ef til vill vegna erindis sem tekur aðeins örfáar klukkustundir. Sá tími dregst frá vinnu, námi, hvíld og samveru með fjölskyldu. Vetrarfærð og vetrarþjónusta, veður og þreyta geta þrengt valkostina enn frekar. Við getum ekki gengið út frá því að ungt fólk hafi alltaf bílinn, tímann og aðstæðurnar til að aka langar leiðir þegar það þarf að sækja þjónustu. Hærri greiðsla notenda fyrir flug getur sömuleiðis ýtt ungu fólki enn frekar yfir í einkabílinn, þótt það kosti meiri tíma og fyrirhöfn. Fækki farþegum veikir það rekstrargrundvöll flugleiða, sem leiðir til enn færri ferða, lakari þjónustu og fækkunar starfa í flugi og tengdri starfsemi. Sömu þarfir, meiri kostnaður Flugmiðinn er aðeins hluti af kostnaðinum við að sækja nám, þjónustu eða sinna fjölskylduerindum fjarri heimili. Við bætast samgöngur og gisting þegar ekki er hægt að komast heim samdægurs. Fjarvera frá vinnu þýðir tap á tekjum og réttindum eða að ganga þurfi á orlof og aðra frídaga. Stundum þarf sömuleiðis að greiða fyrir pössun barna. Fyrir ungt fólk með lítið fjárhagslegt svigrúm er það samanlagður kostnaður sem ræður því hvort hægt sé að fara ferðina. Við sem skrifum þennan pistil búum á ólíkum stöðum en þekkjum sömu hindranirnar. Þjónusta sem öðrum stendur til boða í næsta nágrenni getur kallað á ferðalag, fjarveru og veruleg útgjöld hjá okkur. Þegar stuðningur við dýrari flugmiða minnkar bætist það við þann kostnað sem þegar fylgir búsetunni. Það þarf að meta heildarkostnað fólks við að komast þangað sem það þarf að fara. Markmið loftbrúar um að jafna aðstöðumun verður að mælast í aðgengi. Hvað um miðaverðið? Umræðan má ekki einskorðast við það hversu mikið ríkið greiðir og hversu snemma farþegar bóka. Verðlagning flugfélaganna verður líka að sæta aðhaldi. Samkvæmt skýrslu Vegagerðarinnar hækkaði meðalfargjald á fluglegg í Loftbrú um 35,5% frá 2020 til 2024 og flugfélögin verða að gera grein fyrir þeirri þróun. Hvorki ríki né neytendur eiga að sætta sig við hömlulausar hækkanir án ábyrgðar á afleiðingum fyrir notendur þjónustunnar. Icelandair og önnur flugfélög sem sinna innanlandsflugi þurfa að bjóða viðráðanleg fargjöld, líka fyrir fólk sem verður að ferðast á ákveðnum dögum eða með stuttum fyrirvara. Lægra meðalverð myndi auka vægi fasts stuðnings, á meðan að ódýrir miðar sem henta ekki ferðaþörfinni leysa ekki vandann. Ábyrgðin snýst líka um að fólk geti treyst á keypta þjónustu. Veður og flugöryggi geta sett ferðum skorður og það verður að virða, en þegar ákvarðanir flugfélags um rekstur og skipulag raska ferðaplönum þarf félagið að axla ábyrgð. Það gengur ekki að krefjast fyrirhyggju af farþegum en ætlast síðan til að þeir geti útvegað sér annan ferðamáta og lagt út tugi þúsunda með dagsfyrirvara. Stjórnvöld þurfa að fylgja eftir breytingunni á Loftbrú með skýrum kröfum um verðlagningu og áreiðanleika þjónustunnar. Með föstum stuðningi lendir hver frekari verðhækkun að fullu á farþeganum, en heimilin eiga ekki að sitja eftir bæði með áhættuna af hækkandi verði og fjárhagslega byrði þegar ferðaplön bresta vegna ákvarðana flugfélaganna. Stuðningur sem þarf að virka Stjórn ASÍ-UNG skilur rökin fyrir því að gera kostnað ríkisins af Loftbrú fyrirsjáanlegri og teljum fasta krónutölu geta verið raunhæfa leið. En þá þarf fjárhæðin að byggjast á raunverulegum fargjöldum og ferðamöguleikum fólks. Það nægir hreinlega ekki að kerfið komi vel út þegar hægt er að velja ódýrasta miðann. Við köllum eftir því að stuðningsfjárhæðin verði endurmetin áður en að breytingin tekur gildi. Við það mat þarf að taka tillit til mismunandi fargjalda eftir flugleiðum og aðstæðna þeirra sem hafa lítið val um ferðatíma. Samhliða breytingunni þarf að tryggja reglulega endurskoðun fjárhæðarinnar í tengslum við fjárlög svo stuðningurinn rýrni ekki eftir því sem verðlag breytist. Í lausninni þurfa að felast bæði viðráðanlegri verðlagning flugfélaganna og stuðningur sem dugar miðað við þær ferðir sem fólk fer. Ríkið þarf að beita sér fyrir hvoru tveggja. Markmið Loftbrúar breytist ekki þótt greiðslufyrirkomulagið geri það og ungt fólk á landsbyggðinni þarf að geta treyst á að stuðningurinn nýtist líka þegar ferðadagurinn er ekki valfrjáls. Krónutalan á að mæta þeim raunveruleika. Höfundar eru formaður ASÍ-UNG og stjórnarmaður í ASÍ-UNG. Svanfríður Bergvinsdóttir, formaður ASÍ-UNG Andri Ólafsson, stjórnarmaður í ASÍ-UNG Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun