Körfubolti

Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Veigar Páll fékk tólf mánaða bann.
Veigar Páll fékk tólf mánaða bann. Vísir/sigurjón

Körfuboltamaðurinn Veigar Páll Alexandersson hefur verið dæmdur í tólf mánaða keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi síðastliðið vor. Hann spilar því líklega ekkert með Njarðvík á þessari leiktíð í Bónusdeildinni.

Veigar tók ADHD-lyf í tengslum við próflestur síðasta vor og það mældist í lyfjaprófi eftir leik með Njarðvík gegn Grindavík í úrslitakeppninni síðastliðið vor. Við hittum Veigar á heimili hans í Njarðvík.

„Við erum að spila þennan leik fjögur á móti Grindavík og hann er á þriðjudegi. Helgina fyrir þá erum við að flytja inn í íbúðina og ég er í próflokatörn þarna og næ lítið að læra. Í hugsunarleysi tek ég ADHD-töflu á mánudagsmorgni og læri fyrir prófið sem er á miðvikudegi. Ég fer svo og spila leik, tapa leiknum á þriðjudeginum og er svo tekinn í lyfjapróf eftir leikinn og fell á því,“ segir Veigar og heldur áfram.

„Ég fór inn í klefa og svo fór ég að hugsa út í þetta, hvort það gæti verið að þetta væri ekki í lagi. Ég fór svo og talaði við mennina í lyfjaeftirlitinu, þeir voru tveir. Ég lét þá báða vita bara hvað væri í gangi og að ég hefði tekið töflu í gær. Ég hélt þeim upplýstum um allt og var í góðum samskiptum við þá frá byrjun,“ segir Veigar sem bætti við að hann vissi ekki hvort þetta myndi mælast og að þetta væri ekki upp á skrifað.

Klippa: Veigar Páll fer yfir lyfjaprófsmálið

Veigar hefur verið í greiningarferli í töluverðan tíma sjálfur og er í dag með greiningu á ADHD.

„Ég lét þá vita að ég væri byrjaður í ferlinu. Þegar ég sagði þeim frá þessu var ég ekki viss um að þetta væri bannað, en mig grunaði það auðvitað.“

Hvernig hafa síðustu svona mánuðir verið fyrir þig í þessari óvissu og í þessari bið?

„Þetta er auðvitað bara krefjandi. Óvissan er vond. En það er bara svo margt sem kemur upp. Þú ert að glíma við það að vera svekktur út í sjálfan þig og það er svolítið erfitt. Þetta voru flóknir tímar. Maður veit ekki alveg hvernig maður á að snúa sér þegar þetta er í gangi.“

Veigar Páll Alexandersson hefur verið lykilmaður í liði Njarðvíkur.vísir/Guðmundur

Samstarfsvilji Veigars við Lyfjaeftirlitið mun hafa hjálpað honum en fordæmi eru fyrir lengri bönnum í svona málum.

„Það klárlega hjálpaði. En auðvitað bara líka öll pappírsvinnan á bak við þetta. Ég var búinn að vera að fara til læknis og sálfræðings áður út af þessu. Ég var með lögfræðing í málinu sem var í reglulegum samskiptum við þá. Og ég var ekkert að fela neitt og bara viðurkenndi þessi mistök. Ég trúi því að það hafi hjálpað mér.“

Stuttu eftir lyfjaprófið var greining fyrir ADHD komin hjá leikmanninum.

„Ég fór fyrir einhverjum árum og byrjaði þetta ferli.“

Síðustu mánuði hefur Veigar verið með nánustu fjölskyldu og vini sér við hlið. Það hafi hjálpað gríðarlega.

„Það var bara allt, sko. Ég er ótrúlega þakklátur fyrir alla í kringum mig. Ég hefði aldrei getað gert þetta án þeirra. Bara foreldrar mínir, systkini mín, og kærastan mín sérstaklega. Ég veit ekki hversu oft ég hringdi í bróður minn þegar ég var að keyra og var bara eitthvað að tala út í eitt. Félagið mitt, Njarðvík, var alltaf tilbúið að hjálpa og ég er bara ótrúlega þakklátur.“

Veigar Páll var valinn í landsliðið snemma á þessu ári.Vísir/Anton

Veigari þykir bannið sanngjarnt.

„Ég hefði getað horft á þriggja ára bann og það hefði bara breytt öllu gagnvart körfunni. En ég er bara þakklátur fyrir að þeir hafi tekið inn mína sögu og minn heiðarleika og að þetta sé bara ár. Það er ótrúlega vel sloppið.“

Veigar má byrja aftur með liðinu 12. maí og ef allt gengur upp hjá Njarðvíkingum þá er úrslitakeppnin í Bónus-deildinni enn í gangi þá.

„Þá mæti ég. Ég man þegar við vorum að spila við Val og Kári Jónsson mætti í upphitun í undanúrslitum eftir meiðsli og spilaði síðan með liðinu í úrslitaeinvíginu. Ég vil bara endurtaka það ef þetta gerist, það er klárt mál.“

Veit hvar ég má vera og hvar ekki

En hvernig má leikmaðurinn æfa næstu mánuði?

„Ég hitti Lyfjaeftirlitið snemma í sumar og við fundum bara svona leiðir sem ég get æft. Ég er með körfuboltaaðstöðu sem er ekki notuð í keppni og ég fæ að vera þar þegar það er laust. Svo er ég bara að lyfta í almenningsræktarsölum og svo fer ég út að hlaupa. Ég veit hvar ég má vera og hvar ekki.“

Veigar og kærastan hans eiga von á sínu fyrsta barni í mars á næsta ári. Það hlýtur að vera ákveðið ljós í einhvers konar myrkri hjá þér?

„Bara 100 prósent. Það er bara það sem er búið að hjálpa mér í sumar að það sé eitt lítið kríli á leiðinni og fókusinn var settur á það, að láta henni líða vel.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×