Skoðun

Loftbrúin fjar­lægist skosku leiðina

Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar

Loftbrúin var sett á laggirnar árið 2020 til að bæta aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að miðlægri þjónustu og efla byggðir.

Skoska leiðin sem fyrirmynd

Fyrirmyndin er skoska leiðin, sem hafði verið kynnt hér á landi sem lausn á háum kostnaði íbúa landsbyggðarinnar við innanlandsflug til að sækja miðlæga þjónustu.

Í Skotlandi fá íbúar á tilteknum afskekktum svæðum 50% afslátt af grunnfargjaldi á þeim flugleiðum sem kerfið nær til, án takmarkana á fjölda ferða. Hér á landi var ákveðið að veita 40% afslátt af heildarfargjaldi, en aðeins fyrir sex flugleggi á ári.

Ríkisstjórnin hefur nú kynnt að föst niðurgreiðsla komi í stað 40% afsláttar. Upphaflega var kynnt 7.000 króna niðurgreiðsla á fluglegg, en eftir hörð viðbrögð virðist vera til skoðunar að hækka hana í 9.000 krónur.

Með fastri krónutölu fjarlægjumst við skosku fyrirmyndina. Stuðningurinn rýrnar hlutfallslega þegar fargjöld hækka og heimili á landsbyggðinni bera allan kostnað af frekari hækkunum. Jafnvel 9.000 króna niðurgreiðsla verður minni en núverandi stuðningur þegar fargjald fer yfir 22.500 krónur á fluglegg.

Bent hefur verið á að panta eigi flug með lengri fyrirvara, en fólk ræður ekki alltaf hvenær það þarf að ferðast. Rannsóknir, aðgerðir, veikindi og áföll geta kallað á flug með skömmum fyrirvara.

Sömu skattar en ólíkt aðgengi að þjónustu

Íbúar landsbyggðarinnar greiða jafnháa skatta og aðrir landsmenn. Lög um heilbrigðisþjónustu setja jafnframt fram það markmið að allir eigi kost á bestu heilbrigðisþjónustu sem unnt er að veita.

Í byggðaáætlun stjórnvalda er einnig lögð áhersla á að jafna aðgengi að þjónustu og efla byggðir um land allt. Uppbygging ríkisins á þjónustu á landsbyggðinni er hins vegar ekki nægileg og íbúar þurfa því áfram að ferðast langar leiðir til að sækja víðtæka þjónustu á suðvesturhornið.

Aðgengi að nauðsynlegri þjónustu á því ekki að ráðast af búsetu eða fjárhag. Mikilvægt er því að styrkja Loftbrúna með því að hafa skosku leiðina áfram sem fyrirmynd. Boðuð breyting yfir í fasta krónutölu á hvern fluglegg er skref aftur á bak.

Höfundur er formaður byggðaráðs Múlaþings og varaþingmaður.




Skoðun

Sjá meira


×