Innherji

Vill setja fimmtungs­hlut í Lands­virkjun á markað til að laða að er­lenda fjár­festa

Hörður Ægisson skrifar
„Við erum að komast niður í þriðju deild í ensku,“ sagði Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu, um stöðuna á hlutabréfamarkaðnum.
„Við erum að komast niður í þriðju deild í ensku,“ sagði Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu, um stöðuna á hlutabréfamarkaðnum.

Framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs telur að skráning Landsvirkjunar á hlutabréfamarkað og sala á minnihluta í fyrirtækinu gæti laðað erlenda fjárfesta til landsins og gert íslenska markaðinn, sem sé núna „í þriðju deild í ensku“, að álitlegri fjárfestingarkost. Hann segir jafnframt að það sé ekki „góður bragur á því“ að haldnir hafi verið reglulegir óformlegir fundir stjórnar orkufyrirtækisins án þátttöku fráfarandi forstjóra og er þeirrar skoðunar að slíkt fyrirkomulag samræmist tæplega leiðbeiningum um góða stjórnarhætti fyrirtækja.

Skyndilegt brotthvarf forstjóra Landsvirkjunar, staða Icelandair í kjölfar góðs uppgjörs á þriðja fjórðungi og ládeyða á hlutabréfamarkaði var í brennidepli í fyrsta hlaðvarpsþætti Innherja þar sem Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs, var gestur þáttarins.

Ólafur, sem er sömuleiðis formaður nefndar um fjárfestingarumhverfi lífeyrissjóða, lýsti þungri stöðu íslenska hlutabréfamarkaðarins þar sem viðskipti hafa dregist verulega saman að undanförnu, einkum á þessu ári. Benti hann á að velta á markaðnum, mæld sem hlutfall af heildarmarkaðsvirði skráðra félaga, væri komin niður í um 20 prósent, samkvæmt tölum frá Seðlabankanum. Til samanburðar hefði þetta hlutfall verið um 60 prósent árið 2020 og þyrfti að leita aftur til ársins 2012 til að finna sambærilega stöðu.

„Við erum að komast niður í þriðju deild í ensku,“ sagði Ólafur um stöðuna á markaði. Hann rakti hana meðal annars til hækkandi vaxta undanfarin ár, sem hefðu dregið úr áhuga fjárfesta á hlutabréfum og beint fjármagni í aðra áhættuminni fjárfestingarkosti. „[Það er ástæða til að hafa af þessu] verulegar áhyggjur,“ sagði hann um þróunina og nefndi mögulegar aðgerðir til að efla hann til lengri tíma litið.

„Búa til markað með fjölbreyttum kostum og setja einfaldlega tuttugu prósent í Landsvirkjun á markað,“ sagði Ólafur og benti einnig á að það mætti skoða skráningu minnihluta í öðrum opinberum innviðafyrirtækjum á borð við Isavia og Landsnet. Hann telur að með því mætti auka fjölbreytni fjárfestingarkosta, draga úr sveiflum á íslenska markaðnum og ekki síst laða að erlenda fjárfesta sem hafa takmarkaða möguleika á að fjárfesta í fyrirtækjum sem eru einkennandi fyrir sérstöðu íslenska hagkerfisins.

Búa til markað með fjölbreyttum kostum og setja einfaldlega tuttugu prósent í Landsvirkjun á markað.

Framkvæmdastjóri Birtu, sem er fjórði stærsti lífeyrissjóður landsins með nærri 800 milljarða eignir í stýringu, lagði áherslu á að slík ráðstöfun jafngilti ekki einkavæðingu Landsvirkjunar. „Við erum ekki að tala um að einkavæða Landsvirkjun í heild sinni.“

Að mati Ólafs gæti skráning stórs orkufyrirtækis, rétt eins og Norðmenn hafa gert, haft verulega þýðingu fyrir íslenska hlutabréfamarkaðinn, meðal annars vegna þess hversu fábreyttur hann er og stór hluti eignarhalds skráðra félaga er í höndum lífeyrissjóða. Ríkið þyrfti ekki að afsala sér yfirráðum yfir fyrirtækjunum eða möguleikum til að fylgja eigendastefnu sinni eftir.

Hann viðurkenndi aðspurður að hann telji ekki endilega raunhæft að af slíkum áformum verði, en bætir við að „því oftar sem við ræðum þetta þá er að minnsta kosti líklegra að þetta verði skoðað.“

„Mér finnst ekki góður bragur á þessu“

Í þættinum var einnig rætt um óvænt brotthvarf Harðar Arnarsonar úr starfi forstjóra Landsvirkjunar og þann ágreining sem virðist hafa komið upp um samskipti hans við stjórn fyrirtækisins, en ný fimm manna stjórn var skipuð á vormánuðum síðasta árs. Ólafur var gagnrýninn á að að stjórn Landsvirkjunar hefði haldið ítrekaða óformlega fundi án þátttöku forstjórans. Hann sagðist, sem framkvæmdastjóri stórs lífeyrissjóðs, vel skilja mikilvægi þess að stjórn og forstjóri ættu náið og gagnsætt samstarf.

„En að taka marga óformlega fundi til að ræða eitthvað sem er ekki fært í fundargerð [...] Mér finnst ekki góður bragur á þessu eins og þessu er lýst. Mér finnst þetta ekki í samræmi við þær leiðbeiningar [um stjórnarhætti fyrirtækja] sem ég er að fylgjast með,“ útskýrði framkvæmdastjóri Birtu. Hann var á meðal þátttakenda í pallborðsumræðum á fundi Viðskiptaráðs, SA og Kauphallarinnar í liðinni viku þegar kynnt var sjöunda útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja.

Ólafur tók fram að ekkert væri óeðlilegt við að stjórnarmenn hittust óformlega eða að framkvæmdastjóri viki af fundum þegar við ætti. Annað gilti hins vegar um ítrekuð fundahöld þar sem forstjóri væri ekki viðstaddur og umræður ekki færðar til bókar. Hann taldi að þær upplýsingar sem fram hefðu komið bentu fremur til ágreinings um fundafyrirkomulag og samskipti en stefnu eða rekstur Landsvirkjunar.

„Þetta er svolítið eins og áfengislaus bjór. Ágætis bragð en það er eitthvað skrýtið við það,“ sagði Ólafur um fyrirkomulagið.

Forstjórinn þarf að vera „í flæðinu“

Ólafur benti á að Hörður hefði stýrt Landsvirkjun í 17 ár og verið vanur ákveðnu fyrirkomulagi í samskiptum við stjórn. Ný stjórn hefði tekið við og breytt starfsháttum á sama tíma og fyrirtækið stæði frammi fyrir umfangsmiklum málum, meðal annars á vettvangi samkeppnisyfirvalda. Hann velti því upp hvort stjórnarmenn hefðu áttað sig nægilega á því hvaða áhrif breytt fundafyrirkomulag hefði haft á forstjórann.

Framkvæmdastjóri Birtu undirstrikaði að stjórn hefði vissulega ótvírætt vald, meðal annars til að ákvarða stefnu fyrirtækisins. Það breytti samt ekki mikilvægi þess að forstjóri tæki þátt í undirbúningi ákvarðana og hefði yfirsýn yfir áherslur stjórnar.

Þetta er svolítið eins og áfengislaus bjór. Ágætis bragð en það er eitthvað skrýtið við það.

„Hann þarf líka að vera í flæðinu og í samtalinu,“ sagði Ólafur og nefndi meðal annars ákvarðanir um fjárfestingar, viðunandi áhættustig og arðgreiðslugetu. „Þannig að ef þetta er ekki í góðu flæði hjá risastóru fyrirtæki þá [...] þarf fólk að hafa þroska til að setjast niður og reyna að laga það.“

Ólafur sagðist engu að síður vilja ganga út frá því að ekki lægi alvarlegri ágreiningur að baki starfslokum Harðar en sá sem þegar hefði komið fram. Hann taldi jafnframt jákvætt að málið hefði skapað umræðu um góða stjórnarhætti og samskipti stjórna og framkvæmdastjóra.


Tengdar fréttir

Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir enga formlega stjórnarfundi Landsvirkjunar hafa verið haldna án Harðar Arnarsonar fyrrverandi forstjóra. Hann segir lögin ekki banna stjórnarmönnum að hittast sem hafi borðað saman hádegismat fyrir fundina. Ágreiningurinn snúist um form en ekki stefnu.

Flókið að biðja líf­eyris­sjóði að vera í senn langtíma­fjár­festar og virkir á markaði

Ekki er að sjá af gögnum að íslenskir lífeyrissjóðir séu sérstaklega áhættufælnir í fjárfestingum sínum að mati framkvæmdastjóra eins af stærstu sjóðum landsins, líkt og fjármála- og efnahagsráðherra hefur haldið fram, en hann telur að sporna þurfi við þeirri stöðugu umræðu að skammtímasveiflur í gengi hlutabréfa feli í sér áhættu fyrir lífeyrissjóði. Hann fagnar því ef ráðherra vill skoða leiðir til að auka þátttöku almennings á mörkuðum, sem gæti aukið skilvirkni þeirra, enda sé flókið að biðja lífeyrissjóði að vera í senn langtímafjárfestar og stuðla að stöðugri verðmyndum með tíðum viðskiptum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×