Sjá fram á aukin inngrip seðlabanka og mikla hættu fyrir evrusamstarfið
Sjóðstjóri Visku Macro, sem hefur einkum veðjað á fjárfestingar í málmum, hrávörum og innviðum tengdum gervigreind og orkuframleiðslu, telur að vaxandi skuldavandi ríkja muni knýja seðlabanka til aukinna inngripa á skuldabréfamörkuðum og varar við því að evrusamstarfið geti komist í verulega hættu. Erfitt verður að viðhalda háum raunvöxtum í skuldsettum hagkerfum án þess að það setji þrýsting á ríkisfjármálin og fjármálakerifð, að mati sjóðastýringarfélagsins, og því sé líklegt að ákall um aðgerðir fari vaxandi eftir því sem þau áhrif koma skýrar fram.
Tengdar fréttir
Framkvæmdastjóri AGS varar við vítahring skulda, verðbólgu og hækkandi vaxta
Skuldir hins opinbera í heiminum stefna í að fara yfir hundrað prósent af landsframleiðslu innan áratugar og eru nú þegar þær mestu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins varar við því að þrálát verðbólga og veik staða ríkisfjármála geti þrýst langtímavöxtum enn hærra og kallað á harðari peningastefnu hjá seðlabönkum margra ríkja.
AGS segir skuldastöðu ríkja þrýsta upp langtímavöxtum
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur að vaxandi áhyggjur fjárfesta af mikilli skuldsetningu ríkja eigi þátt í þeirri skörpu hækkun sem orðið hefur á langtímavöxtum á helstu skuldabréfamörkuðum beggja vegna Atlantshafsins. Þrátt fyrir snarpar verðhreyfingar að undanförnu sér sjóðurinn þó ekki merki um óskipuleg viðskipti eða alvarlega röskun á virkni markaðanna.
Viska stofnar nýjan sjóð sem mun einkum fjárfesta í hlutabréfum
Fjárfestingafélagið Viska Digital Assets hefur tekið upp nýtt nafn og heitir nú Viska sjóðir. Samhliða nafnabreytingunni kynnir félagið nýjan sjóð, Viska macro, sem byggir á heildarsýn félagsins á alþjóðlegu efnahagsumhverfi. Nýr sjóður leggur áherslu á fjárfestingar í tækni og hörðum eignum, þar sem uppgangur gervigreindarinnar og áhrif hennar á hagkerfi eru leiðandi stef í stefnu sjóðsins.
Sjóður Visku minnkaði um helming samtímis gengislækkun og innlausnum
Gengistap samhliða erfiðum aðstæðum á rafmyntamörkuðum og innlausnir meðal fjárfesta þýddi að eignir í stýringu rafmyntasjóðs hjá Visku lækkuðu um liðlega helming í fyrra. Yfir tuttugu fjárfestar lögðu nýjum sjóði Visku, sem beinir meðal annars sjónum sínum að fjárfestingum tengdum gervigreind, til um milljarð króna á seinni árshelmingi.
Tíu ára raunvextir orðnir nær þeir sömu og í Bandaríkjunum
Raunvaxtamunur Íslands gagnvart Bandaríkjunum hefur minnkað hratt á undanförnum mánuðum og er nú svo komið að raunvextir til tíu ára eru nánast þeir sömu í löndunum tveimur. Þróunin, sem skýrist bæði af þrálátri verðbólgu hér heima og hækkandi langtímavöxtum erlendis, getur dregið úr hlutfallslegu aðdráttarafli íslenskra eigna þrátt fyrir háa stýrivexti.