Erlent

Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt ó­leyst morð

Lovísa Arnardóttir skrifar
Melissa Ann Smith var myrt árið 1974 og var aðeins sautján ára gömul.
Melissa Ann Smith var myrt árið 1974 og var aðeins sautján ára gömul. Utah Department of Public Safety

Yfirvöld í Utah í Bandaríkjunum hafa komist að því, með því að nota háþróaða erfðatækni, að hinn alræmdi raðmorðingi Ted Bundy var sá sem myrti hina sautján ára Melissa Ann Smith, dóttur lögreglustjóra. Smith fannst látin 27. október 1974 og bar merki um nauðgun og pyntingar. 52 ár eru síðan lík hennar fannst af veiðimönnum.

Í frétt BBC segir að í apríl hafi yfirvöld í Utah staðfest að önnur unglingsstúlka, Laura Ann Aime, hefði einnig verið fórnarlamb Bundys. Sönnunargögn úr því máli voru síðan notuð til að upplýsa mál Smith.

Þar kemur einnig fram að áður en Bundy var tekinn af lífi árið 1989 hafði hann játað að hafa myrt tvær aðrar unglingsstúlkur í Utah. Hann hefur verið tengdur við að minnsta kosti 30 morð víðs vegar um Bandaríkin.

Á blaðamannafundi í gær sagði Mike Reynolds, varðstjóri hjá lögreglunni í Utah-sýslu, að enn væri verið að rannsaka fleiri mál tengd Bundy í ríkinu. „Megum við með hverju upplýstu máli þurrka út minninguna um Ted Bundy,“ sagði hann.

Ted Bundy brosir á öðrum degi réttarhalda í Dade sýslu árið 1979. Vísir/AP

Mikilvægt að geyma erfðaefnin

Í frétt AP um málið kemur fram að rannsakendur telji fullvíst að Bundy hafi borið ábyrgð á morðinu á hinni 17 ára gömlu Melissu Ann Smith árið 1974, en málið hafði lengi verið skráð sem óupplýst, sagði Margaret Olson, saksóknari Summit-sýslu, á blaðamannafundi.

Þeim tókst að loka málinu með því að finna mikilvæg tengsl á milli erfðaefnis sem fannst á Smith og á Lauru Aime. Erfðaefni Bundys var skráð í Flórída, þar sem hann var sakfelldur og að lokum tekinn af lífi. Auk þeirra sönnunargagna bar dauði Smith einkenni „mynsturs, ástæðu, aðferða og tækifæris“ Bundys, sagði Olson.

Bundy hefur verið látinn frá árinu 1989 en staðfestum fórnarlömbum hans heldur áfram að fjölga vegna framfara í erfðaefnisrannsóknum. Hann myrti að minnsta kosti 30 konur og stúlkur í mörgum ríkjum á áttunda áratugnum og mun fleiri sluppu eða lifðu af með áverka.

Haft er eftir Rosie Rivera, lögreglustjóra Salt Lake-sýslu, í frétt BBC að málið ætti að vera merki til annarra fórnarlamba óupplýstra mála „um að það sé von“.

„Réttarvísindin breytast dag frá degi og við höfum getu til að skoða þessi mál aftur og aftur.“ 

Hún hrósaði einnig rannsóknarlögreglumönnum fyrir að hafa varðveitt sönnunargögn í málinu svo lengi og sagði það sýna nauðsyn þess að varðveita sönnunargögn.

Slapp tvisvar úr fangelsi

Bundy er einn alræmdasti raðmorðingi Bandaríkjanna. Hann var þekktur fyrir að nálgast konur á almannafæri, ávinna sér traust þeirra með sjarma sínum eða með því að ljúga að þeim um að hann væri meiddur, lokka þær síðan á afskekkta staði og myrða þær.

Hann var fyrst handtekinn árið 1975 fyrir að ræna konu og dæmdur í 15 ára fangelsi en árið 1977 slapp hann með því að stökkva út um glugga á bókasafni fangelsisins.

Hann náðist aftur eftir átta daga en slapp síðan á ný og hélt áfram að myrða þar til hann var loks handsamaður árið 1978.

Gerðar hafa verið fjöldi kvikmynda og sjónvarpsþátta um Ted Bundy. Tvær myndir komu út árið 2021. Önnur var American Boogeyman með Chad Michael Murray í aðalhlutverki sem Bundy og svo No Man of God árið 2012 þar sem Luke Kirby lék Ted Bundy.

Árið 2019 lék Zac Efron morðingjann alræmda. Myndin heitir Extremely Wicked, Shockingly Evil and Vile. Þá kom einnig út myndin Ted Bundy árið 2002 þar sem Micheal Reilly Burke lék Bundy og sjónvarpsþættir árið 1986 þar sem Mark Harmon lék Bundy. Auk þess hafa verið gerðir fjöldi heimildarþátta og -kvikmynda.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×