Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Agnar Már Másson skrifar 28. október 2026 20:57 Kevin Warsh er seðlabankastjóri Bandaríkjanna og tók við í maí. EPA Seðlabanki Bandaríkjanna ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum og standa þeir enn í 3,75-4 prósentum. Líklegt þykir að ákvörðunin eigi eftir að reita Bandaríkjaforseta til reiði enda stutt í þingkosningar í landinu.
Peningastefnunefnd bankans tilkynnti í dag að vextir yrðu hvorki hækkaðir né lækkaðir þrátt fyrir að litlar sem engar framfarir hafi orðið í baráttunni við verðbólgu þar í landi. Vextir hafa verið óbreyttir frá því í september en í yfirlýsingu bankans kom fram að verðbólga væri enn mikil. Reuters greinir frá því að gefið hafi verið í skyn að frekari hækkanir gætu þó komið ef verðbólga lækki ekki. Tíu greiddu atkvæði með því að halda vöxtum óbreyttum á meðan tveir nefndarmenn greiddu atkvæði með stýrivaxtahækkun. Í hópi þeirra síðarnefndu var Lisa D. Cook, sem Trump hefur ítrekað reynt að reka. Kevin Warsh seðlabankastjóri svaraði aðspurður á blaðamannafundi í dag að komandi þingkosningar 3. nóvember hefðu ekkert með ákvörðunina að gera. Þrátt fyrir verðhækkanir, einkum í tengslum við lokun Hormússund og tollastríð Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, hefur hagvöxtur þó aukist í Bandaríkjunum síðustu misseri og er það að hluta rakið til aukinnar fjárfestingar í gervigreind. Engu að síður hefur lánakostnaður ríkissjóðs aukist verulega jafnframt sem ákveðin gervigreindarfyrirtæki hafa safnað miklum skuldum, að því er New York Times greinir frá. Þá hafi launahækkanir ekki haldið í við hækkandi verðlag. Bandaríkjaforseti hefur ekki brugðist við ákvörðuninni en vænta má þess að hann sé ekki sáttur þar sem hann brást ókvæða við þegar stýrivextir voru hækkaðir í september, þá í fyrsta sinn í þrjú ár. Trump skipaði Warsh stjórnarformann í maí á þessu ári eftir að kjörtímabili forvera hans, Jeorome H. Powell, lauk.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira