Handbolti

Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað lands­leik

Sindri Sverrisson skrifar
Thea Imani Sturludóttir er reynslumesti leikmaður landsliðsins með slétta hundrað landsleiki.
Thea Imani Sturludóttir er reynslumesti leikmaður landsliðsins með slétta hundrað landsleiki. EPA/CHRISTOPHER NEUNDORF

EHF hefur nú birt lista Arnars Péturssonar landsliðsþjálfara yfir þá 35 leikmenn sem mega spila fyrir Ísland á EM kvenna í handbolta í desember. Arnar kynnir EM-hópinn sinn á morgun.

Arnar mun í hádeginu á morgun kynna EM-hópinn sinn. Velja má 20 leikmenn á mótið og svo munu 16 leikmenn verða á leikskýrslu í hverjum leik.

Hægt er að gera sex breytingar samtals á mótinu en þó ekki fleiri en tvær á milli leikja. Allir leikmenn sem Arnar velur verða að vera af 35 manna lista hans hér að neðan.

Á listanum eru meðal annars átta leikmenn sem ekki hafa spilað A-landsleik sem og leikmenn eins og Dana Björg Guðmundsdóttir, Andrea Jacobsen, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Perla Ruth Albertsdóttir og Birna Berg Haraldsdóttir sem ekki voru í hópnum sem mætti Pólverjum í vináttulandsleikjum ytra í síðustu viku.

Hópinn sem birtur var á vef EHF í dag má sjá hér að neðan.

Markverðir:

Leikmaður - Félagslið - Landsleikir/mörk

  • Hafdís Renötudóttir - Valur - 82/5
  • Sara Sif Helgadóttir - Haukar - 27/0
  • Ethel Gyða Bjarnasen - Fram - 3/0
  • Andrea Gunnlaugsdóttir - Grótta - 0/0
  • Danijela Sara Björnsdóttir - HK - 0/0

Vinstra horn:

Leikmaður - Félagslið - Landsleikir/mörk

  • Perla Ruth Albertsdóttir - Selfoss - 57/138
  • Lilja Ágústsdóttir - Sachsen Zwickau - 29/24
  • Dana Björg Guðmundsdóttir - Larvik - 21/50
  • Rakel Oddný Guðmundsdóttir - Haukar - 16/19
  • Ásthildur Þórhallsdóttir - Valur - 0/0

Vinstri skyttur:

Leikmaður - Félagslið - Landsleikir/mörk

  • Andrea Jacobsen - ÍBV - 70/118
  • Lovísa Thompson - Benfica - 43/79
  • Jóhanna Margrét Sigurðardóttir - Haukar - 22/11
  • Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín - Thüringer - 18/11
  • Katla María Magnúsdóttir - Valur - 6/2
  • Inga Dís Jóhannsdóttir - Rødovre HK -1/2
  • Hulda Bragadóttir - Selfoss - 0/0

Miðjumenn:

Leikmaður - Félagslið - Landsleikir/mörk

  • Sandra Erlingsdóttir - ÍBV - 51/212
  • Elín Rósa Magnúsdóttir - Blomberg-Lippe - 44/93
  • Elín Klara Þorkelsdóttir - Sävehof - 39/165
  • Matthildur Lilja Jónsdóttir - ÍR - 11/1
  • Sara Dögg Hjaltadóttir - ÍR - 9/13
  • Embla Steindórsdóttir - Haukar - 0/0

Hægri skyttur:

Leikmaður - Félagslið - Landsleikir/mörk

  • Thea Imani Sturludóttir - Craiova - 100/233
  • Díana Dögg Magnúsdóttir - Blomberg-Lippe - 77/104
  • Birna Berg Haraldsdóttir - ÍBV - 64/127
  • Lena Margrét Valdimarsdóttir - Fram - 5/3

Hægra horn:

Leikmaður - Félagslið - Landsleikir/mörk

  • Katrín Anna Ásmundsdóttir - Fram -26/42
  • Sonja Lind Sigsteinsdóttir - Haukar - 9/8
  • Leandra Salvamoser - HK - 0/0

Línumenn:

Leikmaður - Félagslið - Landsleikir/mörk

  • Katrín Tinna Jensdóttir - HH Elite - 39/48
  • Elísa Elíasdóttir - Valur - 35/34
  • Alexandra Líf Arnarsdóttir - Haukar - 7/3
  • Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir - Selfoss - 0/0
  • Ásdís Halla Hjarðar - ÍBV - 0/0

Starfsteymi landsliðsins:

  • Aðalþjálfari: Arnar Pétursson
  • Aðstoðarþjálfari: Óskar Bjarni Óskarsson
  • Markmannsþjálfari: Hlynur Morthens
  • Liðsstjóri: Hrafnhildur Ósk Skúladóttir
  • Fararstjóri: Jón Gunnlaugur Viggósson
  • Fulltrúi HSÍ: Þórir Hergeirsson
  • Sálfræðingur: Erlendur Egilsson
  • Þrekþjálfari: Hjörtur Hinriksson
  • Sjúkraþjálfarar: Tinna Jökulsdóttir og Jóhanna Björk Gylfadóttir
  • Formaður HSÍ: Jón Halldórsson
  • Framkvæmdastjóri HSÍ: Sólveig Jónsdóttir
  • Fjölmiðlafulltrúi: Daníel Franz Davíðsson
  • Ljósmyndari: Guðmundur Lúðvíksson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×